Opið hús sunnudaginn 1. nóvember. Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is
Lýsing
Að auki eru: Stofa og eldhús í alrými, forstofa og baðherbergi. Suðursvalir. Eignin er tilbúin til afhendingar.
Virkilega fallegar og vel skipulagðar íbúðir að Eskiás 7 á góðum stað í Garðabæ. Allar íbúðir eru með sérinngangi. Næg bílastæði á lóð. Afhending er við kaupsamning
Frágangur: Athugið að myndir enduspegla ekki alltaf rétta íbúð
- Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar fyrir utan megingólfefni en flísar á baðherbergjum/þvottahúsi.
- Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS.
- Eldhústæki verða; blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum.
- Baðherbergi eru flísalög með sturtuklefa, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi/þvottahús í stærri íbúðum eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
- Öll hreinlætistæki eru af vandaðri gerð frá Grohe.
- Ljósleiðarar frá OR og Mílu eru í hverri íbúð.
- Rafbílahleðslukerfi er fyrir hendi.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.