Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares

953 Spánn - Costa Blanca

67.500.000 kr.

661.765 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1072810

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
102 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMA-EIGN GOLFARANS* *GLÆSILEG EINBÝLI VIÐ SERENA GOLFVÖLLINN OG MAR MENOR HAFIÐ* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH.* *SÉR STÆÐI Í SAMEIGINLEGUM BÍLAKJALLARA AUK GEYMSLU* *GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ*

Vönduð og falleg 4ra herb. einbýlishús við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares. Í boði eru bæði hús á einni hæð og tveimur hæðum. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena sem er skemmtileg spænsk borg. Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.

Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is , sími 0034 615 112 869 
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is , sími 00354 893 2495


Nánari lýsing:
Rúmgóð, björt og vel hönnuð einbýli með þremur svefnherbergjum og tveimur til þremur baðherbergjum. Hjónasvíta er með fataherbergi og sér baðherbergi og önnur herbergi með innbyggðum fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa í opnu og vel tengdu rými. Gott þvottahús er inn af eldhúsi. Stórar þaksvalir og 273 fm sér garður með möguleika á einkasundlaug gegn aukagjaldi. Öllum húsum fylgir stæði í bílakjallara og geymsla. Heimilistæki í eldhúsi fylgja einnig með í kaupunum.

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með frábærri sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum sem deilist á 2 lítil fjölbýli með efri/neðri hæðum og 14 einbýlishús.

3 svefnh. og 2 baðh. frá 489.000 evrum + kostn. við kaupin.

Einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt einbýli á frábærum stað.

Los Alcázares  er mjög vinsæll sumarleyfisbær og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor, Los Alcazares,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.