Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
fjölbýlishús

Háaleitisbraut 32

108 Reykjavík

78.900.000 kr.

700.089 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014121

Fasteignamat

75.650.000 kr.

Brunabótamat

59.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1963
svg
112,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. nóvember 2026 kl. 12:15 til 13:00

Lýsing

Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna mikið endurnýjaða og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð til vinstri við Háaleitisbraut 32 í Reykjavík. Fjölbýlishúsinu er mjög vel við haldið. Nýjar hurðar og ný gólfefni á herbergjum og alrými sem og nýjir fataskápar á svefnherbergisgangi og í hjónaherbergi. Góðar djúpar nýflísalagðar svalir. Fjórar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á sameiginlegu bílaplani. Eigninni fylgir bílskúrsréttur.

SMELLIÐ HÉR TIL ÞESS AÐ NÁLGAST SÖLUYFIRLIT EIGNARINNAR

Nánari lýsing:
Forstofa / hol -  harðparket á gólfi og góður fataskápur.
Eldhús - harðparket á gólfi - góð innrétting - keramikk helluborði og vifta - flísar á milli efri og neðri skápa - uppþvottavél fylgir.
Baðherbergi - flísalagt í hólf og gólf - baðkar með sturtuaðstöðu - góð innrétting - gluggi.
Stofa / Borðstofa - mjög björt og rúmgóð - harðparket á gólfi - útgengt á góðar djúpar nýflísalagðar svalir sem snúa í vestur.
Svefnherbergisgangur - harðparket á gólfi - hurð inn á ganginn - nýjir rúmgóðir fataskápar.
Hjónaherbergi (1) - rúmgott - harðparket á gólfi - nýjir fataskápar - útgengt á svalir.
Herbergi (2) - harðparket á gólfi.
Herbergi (3) - harðparket á gólfi.

Sameiginlegt þvottahús með þremur öðrum íbúðum í sameign á jarðhæð - hver íbúð með sína vél - nýtt epoxylakk á gólfi sameignar og sorpgeymslu.
Geymsla í sameign á 1. hæð með hillum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
Lóðin öll er mjög snyrtileg og næg bílastæði.

Um er að ræða vel staðsetta eign á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í almenningssamgöngur og alla þjónustu, svo sem verslanir, leikvöll, leikskóla, skóla og framhaldsskóla sem og íþróttasvæði Víkings við Safamýri. Þá er útivistarsvæði í Laugardalnum í göngufæri.

Framkvæmdir við sameign hússins síðustu ár:
Húsið er í reglubundu viðhaldi og síðustu ár hefur eftirfarandi verið endurnýjað: Allir gluggar íbúðarinnar á austurhlið hússins.  Frárennslislagnir (klóak, skolp og dren). Múrviðgerðir á austurhlið hússins og báðum göflum og verið er að mála húsið á kostnað seljanda.

Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson í síma 842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Gunnar Sv. Friðriksson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Gunnar Sv. Friðriksson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Gunnar Sv. Friðriksson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík