Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Vista
fjölbýlishús

Öldugata 35

101 Reykjavík

107.000.000 kr.

1.023.923 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2002079

Fasteignamat

88.550.000 kr.

Brunabótamat

62.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1955
svg
104,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Öldugata 35, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Afar glæsileg og vönduð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í gamla Vesturbænum. Íbúðin er í fallegu fjögurra íbúða húsi við Öldugötu og hefur verið endurnýjuð að innanverðu að nær öllu leyti á síðustu árum.
Eignin er 104,5 fm, þar af 6,5 fm sérgeymsla.


Lýsing eignar:
Forstofa og hol: Tengja saman rými íbúðarinnar. Vínylparket lagt í fiskibeinamynstur á gólfum og fataskápar.
Eldhús, borðstofa og stofa: Fallegt og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda eina heild. Ljós og vönduð eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, stórri eyju sem hægt er að sitjast við. Glæsilegur marmari á borði og upp hluta af eldhúsvegg. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið og fallegt vínylparket lagt í fiskibeinamynstur er á gólfum. Í stofunni eru sérsmíðaðar marmaraklæddar hillur og bókahilla með innfelldri lýsingu sem setja mikinn svip á rýmið. Útgengt er á skjólgóðar og sólríkar suðursvalir.
Svefnherbergi I: Mjög rúmgott herbergi með vínylparketi og fataskápum.
Svefnherbergi II: Gott herbergi með vínylparketi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og flísalögð sturta glerskilrými. Innbyggð blöndunartæki eru við sturtu og vask. Góð innrétting er undir vaski og skápur er fyrir ofan salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara eru snyrtilega innfelld í vegg aftan við baðherbergishurðina. Hiti í gólfi.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara ásamt aðgangi að sameiginlegu þvottahúsi. Fallegur, sólríkur og skjólgóður sameiginlegur garður er aftan við húsið, með útgengi úr kjallara.
Sameign og stigahús eru snyrtileg. Nýtt teppi var lagt á stiga og stigahúsið málað um mitt ár 2021.

Neysluvatnslagnir innan íbúðar voru endurnýjaðar 2021–2022 og raflagnir ásamt rafmagnstöflu innan íbúðar endurnýjaðar á sama tímabili.

Einstaklega vönduð og fallega endurnýjuð íbúð á frábærum stað í gamla Vesturbænum. Stutt er í skóla og leikskóla, alla helstu verslun og þjónustu og í þægilegu göngufæri við miðborgina og Grandann.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. mar. 2025
79.100.000 kr.
100.000.000 kr.
10201 m²
9.803 kr.
1. sep. 2021
52.800.000 kr.
56.600.000 kr.
104.5 m²
541.627 kr.
17. okt. 2017
43.100.000 kr.
43.500.000 kr.
104.5 m²
416.268 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík