Opið hús: Eskivellir 11, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.
Nánari lýsing.
Anddyri: Komið inn um sérinngang í flísalagða forstofu þar sem er rúmgóður fataskápur sem nær upp í loft.
Eldhús: Í opnu og björtu rými með stofu, falleg innrétting, góð vinnuaðstaða og gott skápapláss, ofn, helluborð og vifta/gufugleypir ,innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofa: Í beinu framhaldi af eldhúsi, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu og útgengi á sér verönd eignar.
Svefnherbergi: Rúmgott, gluggar til austurs og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, gluggar til vesturs, fataskápar innan herbergis. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Falleg hvít innrétting, speglaskápur yfir handlaug, vegghengt WC, handklæðaofn og sturtuklefi. Á gólfi og á hluta af veggjum eru flísars.
Þvottahús: Í sér rými innan íbúðar, ágætlega rúmgott.
Eign tilheyrir sér geymsla (nr. 0106) og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Falleg og vel skipulögð íbúð þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.