Lýsing
Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 3ja herbergja miðjuaðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á góðum stað í hjarta Þorlákshafnar. Birt stærð eignar er 108,8 fm og þar af er íbúðarhluti 78,8 fm og bílskúr 30 fm. Fallegur garður með suður sólpall. Húsið stendur á góðum stað í grónu íbúðarhverfi miðsvæðis í Þorlákshöfn, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra helstu þjónustu.
Eignin býður upp á bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Eldhúsið er með nýrri, hvítri innréttingu og úr stofu er útgengt á sólpall til suðurs. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi, sem eykur þægindi við daglega notkun.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Skipulag eignar: Eignin skiptist í anddyri, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innangengan bílskúr með geymsluaðstöðu.
Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengi út á suður sólpall, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými, með nýrri hvítri innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, AEG bakaraofn, örbylgjuofn, háfur, helluborð, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og inn í sturtu.
Þvottahús: Skápur og skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gönguhurð inn í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Bílskúrinn er 30 fm, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, rafdrifin bílskúrhurðaopnari, hiti, kalt vatn, epoxy á gólfi. Infrarauður klefi í bílskúrnum fylgir með. Geymsla, búið er að opna úr bílskúr inn í geymslu, gönguhurð út á suður sólpall, flísar á gólfi.
Húsið: Er byggt 2002 og er timburhús frá SG hús á Selfossi.
Lóð: Framan við húsið eru malbikuð bílastæði. Á suðurhlið eignarinnar er grasflöt ca. 50 fm. sólpallur með heitum potti sem skapar góða aðstöðu til útiveru og afslöppunar.
Hafnarberg 28 er áhugaverður kostur fyrir þá sem leita að vel skipulögðu raðhúsi á einni hæð með góðri nýtingu fermetra, innangengum bílskúr og útisvæði til suðurs. Hér fara saman þægilegt skipulag, björt íverurými og góð staðsetning í hjarta Þorlákshafnar.
Umrædd fasteign er í eigu bróðurs Hólmars Björns Sigþórssonar starfsmanns Helgafells fasteignasölu ehf, en skv. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa ber að upplýsa um tengsl fasteignasala við eiganda.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.