Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
svg
Byggt 2019
svg
176 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 - og Betri Stofan kynna: Glæsilegt 176 fm heilsárshús í golfparadís við Öndverðarnes í Grímsnesinu. Þetta er glæsileg eign á vinsælum stað í aðeins 45 mínútna keyrslu frá Reykjavík. Kiðhólsbraut 25. Bílastæði við húsið fyrir nokkra 5-6 bíla. Gestahús. Heitur og kaldur pottur. Útisturta. Steyptur körfuboltavöllur. Grassvæði til að tjalda eða setja hjólhýsi er á lóð. Sjón er sögu ríkari. 5 svefnherbergi og 3 baðherbergi samtals. Húsið er nálægt 15. og 16. holu á Öndverðarnesgolfvellinum. Sundlaug með tveimur heitum pottum er á svæðinu og frítt að nota. Golfbíll getur fylgt með í kaupum.

Eignin skiptist í anddyri, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, geymslu, eldhús, stofur, gestahús með baðherbergi(3) og svefnherbergi(5).
Fallegar flísar á gólfum. Flotað gólf. Gólfhiti. Steypt hús í bakgarði sem er með mikilli lofthæð og er teiknað fyrir golfhermi.

Húsið er fullbúið með 250 m2 verönd, heitum og köldum potti. Falleg lýsing er við húsið og á sólpalli. Grillaðstaða.

Húsið er skráð 151 fm auk 25 fm gestahúss. Öndverðanes sem áður var kallað Múraraland.
Rafmagnshlið er inná svæðið.
Umsjónarmaður starfar allt árið á svæðinu og sér m.a. um rekstur sundlaugar allt árið.

Búið er að gróðursetja töluvert á lóðinni sem er einnig kjarri vaxin.

Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni í útivist, veiði í Hvítá, frítt í sundlaug og 18 holu golfvöll. Stutt á Selfoss í alla þjónustu, u.þ.b. 14 mín akstur
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík