Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Mikaelsson
Vista
svg

341

svg

169  Skoðendur

svg

Skráð  1. nóv. 2026

fjölbýlishús

Calle Isla Menorca Los Alcázares 30710

953 Spánn - Costa Blanca

39.800.000 kr.

530.667 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F0000000

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2017
svg
75 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta

Lýsing

Fyrirtækjasala Ísands - ATV (s. 517 3500 | atveignir.is) kynnir :

Björt og nútímaleg íbúð í vinsælu Puerto Marina hverfinu, byggt árið 2017, tekin í notkun 2021.
Íbúðin er glæsileg og vönduð í alla staði. Allt innbú fylgir, þ.m.t. listaverk á veggjum, borð, stólar, sófi, rúm, tilbúið til að flytja inní. 
Tvö svefnherbergi (annað með baði), annað baðherbergi, innrétt eldhús, stofa og einkasvalir.
Á fyrstu hæð (ofan jarðh.) þriggja hæða húss með lyftu.
Puerto Marina er vel viðhaldið lokað hverfi á vesturströnd Mar Menor – stærsta saltvatnslóni Evrópu. Róleg, hlý og grunn vötn gera það tilvalið fyrir fjölskyldur og vatnaíþróttir.

HELSTU KOSTIR
Nútímaleg bygging frá 2017 í góðu ástandi, er nýjasti hlut af byggðarklasanum.
• Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað með baði).
• Einkasvalir fyrir útivist. Landsvæði suður-megin er friðað og verður ekki byggt þar.
• Öruggt, lokað hverfi með þremur sameiginlegum sundlaugum
• Lyfta (húsið er á 1. hæð yfir jarðhæð) • Öll dagleg þjónusta í göngufæri • Stutt á ströndina 
STAÐSETNING OG LÍFSSTÍLL
Puerto Marina er vel viðhaldið lokað hverfi á vesturströnd Mar Menor, stærsta saltvatnslóni Evrópu. Róleg, hlý og grunn vötn gera það tilvalið fyrir fjölskyldur og vatnaíþróttir.
• U.þ.b. 10-12 mín. göngufæri að ströndum og göngustíg Mar Menor
• Þrjár stórar sameiginlegar sundlaugar innan hverfisins
• Verslanir, veitingastaðir og þjónusta í stuttri göngufjarlægð
• Murcia–Corvera flugvöllur ~20–25 mín í bíl
• Alicante flugvöllur ~50 mín · Torrevieja ~20 mín · Murcia borg ~25 mín
• Nokkrir glæsilegir golfvellir (La Serena, Roda, La Manga) í nágrenninu
• Hentar vel fyrir heilsársbúsetu 
• Frábært svæði til ferðamannaútleigu eða Airbnb 

Á eigninni eru áhvílandi um kr. 9,5M. 
Seljandi er tilbúinn að skoða ýmis skipti og/eða greiðslukjör.  

----------------------------------
Kostnaður kaupanda almennt við kaup notaðra íbúða á Spáni. Tölur eru áætlaðar: 
Kostnaður kaupanda vegna aðilaskipta er svæðisbundinn (ITP) 7,75%. Heildar-kostnaður kaupanda gæti verið á bilinu 9 -11% ofaná kaupverðið, sem er hefðbundið í fasteignaviðskiptum á Spáni, en fer jafnframt eftir þóknun lögmanns kaupanda. 
----------------------------------

---------------------------------
Fyrirtækjasala Íslands - ATV, Síðumúla 31, 108 Reykjavík,  (+354) 517 3500

Óskar Mikaelsson - lg. fasteigna- fyrirtækja- og skipasali - s. 773 4700 - oskar@atveignir.is
Björgvin Ó. Óskarsson - rekstrar- og kerfisfr., lg.lm., lg.esky. - s. 773 4500 - bjorgvin@atv.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasali bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Þjónustugjald eða umsýslugjöld til fasteignasölu er skv. gjaldskrá. 
-      Önnur þjónusta en tilgreind er sérstaklega í þjónustusamningi milli kaupanda og fasteignasala skal greitt skv. tímagjaldi kr. 24.500,- /klst m/vsk, enda unnið með samþykki og vitund sem og í þágu seljanda og/eða kaupanda.

Fyrirtækjasala Íslands

Fyrirtækjasala Íslands

Síðumúla 31, 108 Reykjavík
Fyrirtækjasala Íslands

Fyrirtækjasala Íslands

Síðumúla 31, 108 Reykjavík