Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Tjarnarlundur 9F

600 Akureyri

46.900.000 kr.

582.609 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151248

Fasteignamat

43.850.000 kr.

Brunabótamat

42.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
80,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 5. nóvember 2026 kl. 16:15 til 16:45

Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. nóvember kl 16:15-16:45 - Vinsamlegast skráið ykkur á sölusýningu á kasa@kasafasteignir.is - Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýning niður.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Tjarnarlundur 9F - Björt og vel skipulögð 3 herbergja 80,5 fm enda-íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi á Brekkunni. 

** Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. nóvember kl 16:15-16:45 - Vinsamlegast skráið ykkur á sölusýningu á kasa@kasafasteignir.is **
** Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýningin niður **


Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús/geymslu, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Einnig fylgir eigninni sérgeymsla á jarðhæð.

Forstofa er með flísum á gólfi, opnu fatahengi og efri skápum. 
Eldhús er með plastparketi á gólfi. Þar er hvít, sprautulökkuð innrétting með dökkum flísum á milli bekkja og ljósri bekkjarplötu. Lítill borðkrókur er undir glugga til suðurs.
Stofa og hol eru í opnu og björtu rými með plastparketi á gólfum. Úr stofu er gengið út á svalir til vesturs. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu plastparketi á gólfum. Í hjónaherbergi er rúmgóður fataskápur. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi.
Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi. Þar er dúkur á gólfi, skolvaskur, hillur og opnanlegur gluggi. Pláss er fyrir bæði þvottavél og þurrkara. 
Sér-geymsla skráð 4,6 m²  er á jarðhæðinni. Þar er lakkað gólf og hillur. 

- Gluggar gler og svalahurð hafa nýlega verið endurnýjuð
- Húsið var málað og múrviðgert að utan sumarið 2020
- Nýtt teppi í stigagangi árið 2026
- Sameiginleg hjólageymsla er í sameign

- Frábær staðsetning, rétt við leik- og grunnskóla og íþróttasvæði KA
- Stutt í verslanir og ýmsa þjónustu

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

img
Helgi Steinar Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. okt. 2020
25.600.000 kr.
25.500.000 kr.
80.5 m²
316.770 kr.
12. jan. 2018
18.500.000 kr.
22.700.000 kr.
80.5 m²
281.988 kr.
28. mar. 2013
12.450.000 kr.
14.500.000 kr.
80.5 m²
180.124 kr.
17. ágú. 2009
11.685.000 kr.
13.900.000 kr.
80.5 m²
172.671 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri