Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður J. Tyrfingsson
Haraldur Björnsson
Vista
raðhús

Digranesheiði 45C

200 Kópavogur

139.500.000 kr.

1.143.443 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2542560

Fasteignamat

70.900.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
122 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN KYNNIR: Glæsileg ný raðhús við Digranesheiði 45 A, B, C og D í Kópavogi. Húsin eru á tveimur hæðum, 123,6 fm auk bílskýlis, á fallegum útsýnisstað í Digranesi. Þrjú svefnherbergi, björt alrými, suðurgarður og svalir til suðvesturs.

Húsin verða afhent í janúar–febrúar 2027, fullbúin að innan og utan en án gólfefna, að undanskildum flísalögðum rýmum. Lóð skilast fullfrágengin.

Bókið skoðun hjá Unni í síma 8660507,  unnur@gardatorg.is, eða Sigurði í síma 898 3708, sigurdur@gardatorg.is

Nánari lýsing eignanna:

Neðri hæð:
Forstofa með fataskáp. Geymsla og flísalögð gestasnyrting. Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi í garð til suðurs.
Efri hæð:
Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til suðvesturs. Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, innréttingu og glugga. Sérþvottahús með innréttingu.
Gólfhiti er í húsunum.
Bílskýli og lóð:
Bílskýli með snjóbræðslu og tengi fyrir rafhleðslu. Aukabílastæði á lóð. Hjóla- og vagnageymsla er við austurhlið bílskýlis.
Aðkoma og framlóð verða hellulögð með snjóbræðslu. Bakgarður snýr til suðurs og verður tyrfður. Lagnir fyrir heitan pott verða í garðinum.
Staðsetning:
Húsin standa á fallegum útsýnisstað í grónu hverfi í Digranesi. Stutt er í Álfhólsskóla, íþróttahúsið Digranes, verslanir og alla almenna þjónustu.
Einstaklega falleg og vel skipulögð fjölskylduheimili með þremur svefnherbergjum, bílskýli og góðum útisvæðum á þessum vinsæla stað.
Húsin eru í byggingu. Uppgefnar stærðir eru samkvæmt fyrirliggjandi teikningum, með fyrirvara um endanlega skráningu í fasteignaskrá.

Nánari upplýsingar veita:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 866 0507 eða unnur@gardatorg.is
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari, s: 898 3708 eða sigurdur@gardatorg.is


Garðatorg eignamiðlun er staðsett að Lyngási 11, Garðabæ.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ
Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ