Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
einbýlishús

Erluás 17

221 Hafnarfjörður

209.900.000 kr.

665.926 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2255739

Fasteignamat

169.600.000 kr.

Brunabótamat

107.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
315,2 m²
svg
6 herb.
svg
5 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. nóvember 2026 kl. 13:15 til 13:45

Opið hús: Erluás 17, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. nóvember 2026 milli kl. 13:15 og kl. 14:45.

Lýsing

Virkilega fallegt einbýlishús á tveim hæðum með bílskúr og auka íbúð á góðum stað í Áslandinu, Hafnarfirði. Steinsnar frá skóla og leikskóla. Tvennar svalir og fallegt útsýni. Húsið er steinað að utan því lítið viðhald á húsinu að utan. Eignin er alls 245,2 fm að stærð samkvæmt fmr, sem skiptist þannig að neðri hæð er 91,2 fm, efri hæð 122,8 fm og bílskúrinn 31,2 fm. Að auki er ca. 85 fm afar góð þriggja herbergja auka íbúð með sér inngangi á hlið hússins, sem aðal íbúðin finnur lítið fyrir.

- Gegnheil hnota á gólfum hússins.
- Nýtt snjóbræðslukerfi á bílaplani og gönguleið að húsi, einnig er nýr varmaskiptir í húsinu fyrir neysluvatn.
- Teikningar fyrir nýju skipulagi, ásamt uppteiknuðum garði sem kemur vel út.
- Nýlega steyptir veggir fyrir framan hús.
- Tröppur niður í garðinn og að auka íbúð sem voru steyptar síðast liðið sumar.
- Rafmagn endurnýjað. Leiktæki í garði sem fylgja með.
- Hleðslustöð fyrir tvo bíla.
- Loftræsting á neðri hæð hússins inn og út.
- Lýsingu, heitum potti og öðru í húsinu er appstýrt.

Nánari lýsing:
Efri hæð: Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Innangengt er úr forstofu inn í bílskúr. Forstofuherbergi með flísum á gólfi og skáp (teiknað sem þvottahús). Gangur með parket á gólfi. Stofa og borðstofa í björtu alrými með parket á gólfi, útgengt á tvennar svalir í suð/vestur með góðu útsýni. Möguleiki að setja upp arinn í stofunni. Eldhúsið er mjög snyrtilegt með hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og ísskápur innfellt í innréttingu. Eldunareyja með góðu skúffuplássi. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og hluta veggja. Opnanlegur gluggi, handklæðaofn og speglaskápur. Eitt stórt herbergi (raunar tvö, búið að opna á milli herbergja, hægt að breyta aftur), parket á gólfi og skápar.

Neðri hæð:
Milli hæða er parketlagður stigi með næturlýsingu. Tvö barnaherbergi með parket á gólfi Hjónaherbergi sem er mjög rúmgott með skápum og parketi. Glæsilegt baðherbergi með sturtu og baðkari, flísalagt í hólf og gólf, stór speglaskápur. Gólfhiti er á neðri hæð.

Bílskúrinn: Er flísalagður, þvottaaðstaða í enda bílskúrs. Varmaskiptir, hurðaopnari Heitur pottur er á palli fyrir framan húsið.

Auka íbúð: Sérinngangur og pallur fyrir framan íbúð. Forstofa með flísar á gólfi og skáp. barnaherbergi með parketi á gólfi Hjónaherbergi, rúmgott með parketi á gólfi og skáp. Stofa með gluggum í tvær áttir, parket á gólfi. Eldhús mjög rúmgott með hvítri háglans innréttingu. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og veggjum. Handklæðaofn og vaskinnrétting. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherberginu.

Um er að ræða afar vandaða og flott eign sem er virkilega vel staðsett í Áslandinu, Hafnarfirði í barngóðu hverfi,
þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og skemmtilegar gönguleiðir t.d í kringum hina vinsælu Ástjörn. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

img
Stefán Rafn Sigurmannsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. okt. 2016
64.200.000 kr.
67.000.000 kr.
245.2 m²
273.246 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði