Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
fjölbýlishús

Naustabryggja 27

110 Reykjavík

98.900.000 kr.

565.466 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2252672

Fasteignamat

109.450.000 kr.

Brunabótamat

102.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
174,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 9. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Naustabryggja 27, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Elín Viðarsdóttir, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynnir í einkasölu Naustabryggju 27, 110 Rvk. ásamt stæði í bílageymslu.
Fallega og töluvert endurnýjaða 6 herbergja fjölskylduvæna íbúð á 2 hæðum með þvottahús og geymslu innan íbúðar


- Eignin er skráð skv. HMS 174,9 fm auk stæðis í lokuðu bílskýli fylgir (ekki inní skráðum fm)
- Neðri hæð 97,8 fm og efri hæð 77,1 fm auk svala
- 4 rúmgóð svefnherbergi, 2 á neðri hæð og 2 á efri hæð
- 2 stofur, 2 salerni, 2 svalir á hvorri hæð
- 2023: Endurnýjuð eldhúsinnrétting og gólfefni neðri hæð

- 2026: Skipt um allar innihurðir. Nýtt stigahandrið. Skipt út 12 V halogen loftljósum yfir í 220 V led í alrými og herbergjum.
- Laus við kaupsamning - ný máluð okt. 2026
- Gengið er inn í íbúðana af sameiginlegum stigagangi.

Eignin skiptist í : 
Neðri hæð: Forstofa, eldhús, borðstofa/stofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Svalir.
Efri hæð: Opið rými/stofa, 2 svefnherbergi, salerni/geymsla. Breyting er frá teikningu á útfærslu salerni/geymslu.

Nánari lýsing: 
Neðri hæð:
 Af sameiginlegum snyrtilegum stigagangi er gengið inn í eignina.
Forstofa: Gengið er inn í parketlagða forstofu. Veggklæðning og fatahengi. 
Eldhús: Opið við stofu. Parket á gólfi. Hvít endurnýjuð eldhúsinnrétting 2023 efri og neðri skápar, ofn í hæð. Mikið geymslupláss.  Gott borðpláss.
Stofa/Borðstofa: Parketlögð með síðum gluggum og útgengi á svalir. 
2 svefnherbergi: Rúmgóð, parketlögð með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar, vaskinnrétting. Nýr baðvaskur og blőndunartæki og glerhlið á baði (okt. 2026)
Þvottahús: Flísar. Hvít innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Hol: Parketlagt. Þaðan eru góður stigi með fallegu handriði upp á efri hæð íbúðarinnar.

Efri hæð: 
Opið rými/stofa: Upptekið loft, mikið rými sem stúka mætti niður ef vill, parketlagt, útgengi á svalir.
2 svefnherbergi: Parketlögð með skápum. Bæði rúmgóð.
Salerni/geymsla: Parketlagt. Sett (ág.2016) vaskinnrétting og salerni. Breyting er frá teikningu á útfærslu salerni/geymslu.

Bílskýli: Innangengt úr stigagangi. Hluttfallstala í bílgeymslu í kjallara matshluta 01 er 4%

Samantekt: Snyrtilegt og vel viðhaldin 6 herbergja íbúð á 2 hæðum - frábær fjölskyldueign - ásamt stæði í lokuðu bílskýli.

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs í síma 695-8905 og/eða á netfanginu elin@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. okt. 2016
46.050.000 kr.
45.000.000 kr.
174.9 m²
257.290 kr.
12. feb. 2016
46.050.000 kr.
37.300.000 kr.
174.9 m²
213.265 kr.
12. jan. 2007
31.530.000 kr.
35.700.000 kr.
174.9 m²
204.117 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone