Upplýsingar
Byggt 1967
115,4 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Skarðshlíð 13i
Rúmgóð og snyrtileg 4ra - 5 herbergja íbúð á efstu hæð í austur enda við Skarðshlíð 13, samtals 115,4 m² að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gang, fjögur herbergi, baðherbergi og þvottahús auk sérgeymslu í kjallara.
Forstofa er með harðparketi á gólfi og fataskáp og fatahengi.
Eldhúsið rúmgott og þar er dúkur á gólfi og hvít og beyki innrétting. Ísskápur (gamall) í innréttingu fylgir með við sölu. Góðir gluggar til austurs - gott útsýni.
Stofan er mjög rúmgóð og þar er harðparket á gólfi. Útgangur er á svalir til suðurs.
Svefnherbergin og baðherbergið eru á svefnherbergisgangi sem hægt er að loka frá stofunni. Herbergin þar eru þrjú en einnig er herbergi út frá stofunni sem getur verið fjórða svefnherbergið. Herbergin eru öll með harðparketi á gólfi og í þremur þeirra eru fataskápar með rennihurðum. Út úr hjónaherbergi er svalir til austurs.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, nýju salerni, nýjum skáp undir vaska, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Blöndunatæki í sturtu og vaska eru ný.
Þvottahús er inn af eldhúsinu og þar er dúkur á gólfi, hillur á veggjum og opnanlegur gluggi.
Sér geymsla er í kjallaranum og þar eru hillur á veggjum og opnanlegur gluggi.
Annað
- Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2021
- Gluggar og svalahurðar voru endurnýjaðar 2023 og sömuleiðis allir gluggar í sameign og stigagangi.
- Stigagangur var málaður og skipt um teppi 2025.
- Harðparket var lagt á íbúðina árið 2019.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum.
- Stutt í ýmsa verslun og þjónustu
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Íbúðin er laus og tilbúin til afhendingar við kaupsamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.