Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Hallveig Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hestavað 3

110 Reykjavík

84.500.000 kr.

678.170 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2283816

Fasteignamat

85.800.000 kr.

Brunabótamat

78.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
124,6 m²
svg
4 herb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

HESTAVAÐ 3, 110 REYKJAVÍK

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR

Í einkasölu bjarta og rúmgóða 124,6 m², fjögurra herb. endaíbúð á 2. hæð með stæði í lokaðri bílageymslu merkt 01B07, í góðu lyftuhúsi við Hestavað 3 í Norðlingaholti í Reykjavík.
Íbúðin er vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, björtu og opnu stofu- og eldhúsrými, svölum og þvottaaðstöðu innan íbúðar. Eigninni fylgja einnig sérgeymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

MAKASKIPTI Á MINNI EIGN KOMA TIL GREINA.
Seljendur eru opnir fyrir því að skoða minni fasteign sem hluta af kaupverði. Þeir eru sveigjanlegir varðandi staðsetningu og koma eignir á höfuðborgarsvæðinu sem og í nágrenni þess til greina.

Fastanúmer: F2283817
Ásett verð: 84.900.000 kr.

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNAR
Benedikt Ólafsson – löggiltur fasteignasali og leigumiðlari
Sími: 661 7788 | Netfang: bo@stofnfasteignasala.is


*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*


*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR
  • Rúmgóð 124,6 m² fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð.
  • Þrjú svefnherbergi og björt stofa með opnu eldhúsi og borðstofu.
  • Svalir og góð birta í helstu rýmum.
  • Þvottaaðstaða innan íbúðar.
  • Sérgeymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
  • Fjölskylduvænt hverfi, stutt í Rauðavatn, Heiðmörk og þjónustu.

EIGNIN SKIPTIST Í
Forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaaðstöðu innan íbúðar og svalir. Auk þess fylgja eigninni sérgeymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

NÁNARI LÝSING
FORSTOFA OG HOL
Forstofa með aðstöðu fyrir yfirhafnir og skó. Þaðan er gengið inn í hol sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
ELDHÚS
Bjart eldhús í opnu sambandi við stofu og borðstofu. Viðarinnrétting með góðu skápaplássi og eyju með helluborði og háfi. Eldhúsið er vel staðsett gagnvart borðstofu og stofu.

STOFA OG BORÐSTOFA
Björt og rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu. Opið skipulag við eldhúsið gefur rýminu skemmtilegt yfirbragð og góða nýtingarmöguleika.
Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn og útgengt er á svalir frá stofunni.

HJÓNAHERBERGI
Rúmgott herbergi með fataskápum og góðu plássi fyrir hjónarúm.

SVEFNHERBERGI II
Bjart og vel nýtanlegt herbergi sem hentar sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi.

SVEFNHERBERGI III
Herbergi sem hefur verið nýtt sem setustofa og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika eftir þörfum.

BAÐHERBERGI
Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, salerni og innréttingu með handlaug.

ÞVOTTAHÚS
Innan íbúðar með plássi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt hillu- og geymsluaðstöðu.

SVALIR
Svalir með útsýni yfir nærliggjandi byggð og umhverfi.

SÉRGEYMSLA OG BÍLAGEYMSLA
Íbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

SAMEIGN
Aðkoma að íbúðinni er um lokaðan stigagang með lyftu. Í sameign er einnig aðstaða fyrir hjól og barnavagna.

FRAMKVÆMDIR Á HÚSINU Á SÍÐUSTU ÁRUM
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum var húsið múrviðgert og málað árið 2021 og svalir við stigagang múrviðgerðar árið 2024.

STAÐSETNING
Hestavað 3 er í Norðlingaholti, vinsælu og fjölskylduvænu íbúðahverfi í Reykjavík.
Stutt er í skóla, leikskóla, grenndarkjarna og helstu þjónustu. Náttúruperlurnar Rauðavatn og Heiðmörk eru í næsta nágrenni og bjóða upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og hreyfingar allt árið.

ENGLISH
Bright and spacious 124.6 m², four-room end apartment on the second floor in Norðlingaholt, Reykjavík. The property features three bedrooms, an open-plan living and dining area with kitchen, a balcony, laundry facilities within the apartment, private storage and parking in an enclosed garage.
The property is conveniently located near schools, local services and the popular outdoor recreation areas of Rauðavatn and Heiðmörk.

POLSKI
Jasne i przestronne czteropokojowe mieszkanie narożne o powierzchni 124,6 m², położone na drugim piętrze w dzielnicy Norðlingaholt w Reykjavíku.
Mieszkanie obejmuje trzy sypialnie, salon połączony z jadalnią i kuchnią, balkon, miejsce na pralkę i suszarkę w mieszkaniu, komórkę lokatorską oraz miejsce parkingowe w zamkniętym garażu.
W pobliżu znajdują się szkoły, lokalne usługi oraz popularne tereny rekreacyjne Rauðavatn i Heiðmörk.

ERT ÞÚ AÐ HUGSA UM AÐ SELJA?
Okkur hjá STOFN Fasteignasölu vantar eignir af öllum stærðum og gerðum á skrá.
Hafðu samband og fáðu faglega, persónulega ráðgjöf.

STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið
Heilindi – Dugnaður – Árangur

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. okt. 2020
47.800.000 kr.
52.000.000 kr.
124.6 m²
417.335 kr.
15. sep. 2014
28.500.000 kr.
32.000.000 kr.
124.6 m²
256.822 kr.
26. feb. 2014
28.500.000 kr.
32.000.000 kr.
124.6 m²
256.822 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ