Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Bæjarlind 7 (201)

201 Kópavogur

97.900.000 kr.

828.959 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2361533

Fasteignamat

86.400.000 kr.

Brunabótamat

101.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
118,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilega og rúmgóða 118,1 m2 þriggja herbergja íbúð á annarri hæð við Bæjarlind 7. Eignin skiptist í 111,3 m2 íbúð og 6,8 m2 sérgeymslu í kjallara. Auk þess eru 8,7 m2 svalir og sérmerkt stæði á lóð. Sér þvottahús innan íbúðar. Fallegar innréttingar frá AXIS.

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Björt og rúmgóð forstofa með stórum glugga. Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur frá AXIS.

Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús með vönduðum innréttingum í ljósum og dökkum lit. Borðplötur úr stein. Gott vinnupláss og skúffur. Eldhústæki frá AEG. Eldhúsið er opið að borðstofu og stofu.

Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með stórum gluggum og góðri birtu. Stofan býður upp á fjölbreytta möguleika og rúmar vel bæði setustofu og sjónvarpsaðstöðu. Frá borðstofu er útgengt út á svalir. Fallegt parket á gólfi.

Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Parket á gólfi og góðir fataskápar.

Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Vönduð dökk innrétting með hvítri stein borðplötu, handlaug og og stór spegill með innbyggðri lýsingu. Upphengt salerni og sturta.

Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi og innréttingu með skápum, vaskaborði og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Svalir: Frá borðstofu er útgengt á 8,7 m2 svalir.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, skráð 6,8 m2. Mjög góð lofthæð í sameigninni.

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði er á lóðinni fyrir íbúðina.

Staðsetning: Bæjarlind er vel staðsett í Lindahverfi í Kópavogi þar sem stutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu. Smáralind er í nágrenninu ásamt veitingastöðum, líkamsrækt og annarri þjónustu. Góðar samgöngutengingar eru við helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins.

Hér er um að ræða glæsilega og rúmgóða þriggja herbergja íbúð með vönduðum AXIS-innréttingum, stórri eldhúseyju, sérþvottahúsi, góðum svölum og sérmerktu bílastæði á eftirsóttum stað í Kópavogi.

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is



Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. júl. 2024
80.850.000 kr.
86.500.000 kr.
10201 m²
8.480 kr.
11. jan. 2019
49.650.000 kr.
56.500.000 kr.
118.1 m²
478.408 kr.
12. jan. 2018
21.250.000 kr.
225.246.000 kr.
520.7 m²
432.583 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík