Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1973
173,2 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Kasa fasteignir 461-2010.
Spónsgerði 3 – Mikið endurnýjað 5 herbergja einbýlishús með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað á Brekkunni, Nýbúið að fara í framkvæmdir á þakinu komið bárujárn og nýr þakkantur og þakrennur.
Fallegt einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og sambyggðum bílskúr. Skráð stærð eignarinnar er 173,2 fm og til viðbótar er um 12 fm viðbygging samtals 185 fm. Á lóðinni eru timburverandir, heitur pottur/skel og geymsluskúr.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, sjónvarpshol, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er með gráum gólfflísum og hvítum fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu, flísum á milli skápa og gráum flísum á gólfi. Tveir ofnar eru í innréttingu, þar af annar combi-ofn, og gert ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél. Við glugga er góður borðkrókur. Gólfhiti er í eldhúsi.
Sjónvarpshol er með harðparketi á gólfi og útgengi á timburverönd með skjólveggjum og heitum potti/skel. Sérsmíðaður veggfestur sjónvarpsskenkur í sjónvarpsholi fylgir ekki með við sölu.
Stofa er björt með uppteknu lofti og gluggum til þriggja átta. Harðparket er á gólfi.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með harðparketi á gólfi og tvö með fataskápum. Gólfhiti er í herbergi inn af forstofu.
Aðalbaðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er hvít innrétting með hvítri kvartsborðplötu, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og sturta. Gólfhiti er tengdur við ofn. Eftir er að setja upp sturtugler.
Annað baðherbergi er inn af þvottahúsi. Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með innfelldum tækjum. Gólfhiti er á baðherberginu. Opnanlegir gluggar eru á báðum baðherbergjum.
Þvottahús er á tengigangi milli íbúðar og bílskúrs. Þar eru gráar gólfflísar, hvít innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og góður skápur. Gólfhiti er í þvottahúsi.
Bílskúr er skráður 42 fm. og er með ljósu epoxý á gólfi, sér gönguhurð og rafdrifinni innkeyrsluhurð. Skápar í bílskúr fylgja við sölu. Úr bílskúr er gengið út á baklóð þar sem eru timburverönd og geymsluskúr.
- Þak var endurnýjað 2026.
- Rafmagn var sett í þakskyggni fyrir lýsingu.
- Fyrir um 10 árum var byggt á milli íbúðarhúss og bílskúrs. Þá voru herbergi við forstofu og þvottahús stækkuð og útbúið annað baðherbergi inn af þvottahúsi. Frárennsli var endurnýjað á sama tíma.
- Útidyrahurðir og svalahurð voru endurnýjaðar fyrir um 9-10 árum.
- Hluti glers og tveir gluggar hafa verið endurnýjaðir.
- Harðparket var lagt á íbúðina árið 2020.
- Búið að setja hitaþráð í þakrennur.
- Niðurgrafið trampólín í garði fylgir við sölu.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. mar. 2025
94.750.000 kr.
103.500.000 kr.
10101 m²
10.247 kr.
14. okt. 2020
55.000.000 kr.
70.100.000 kr.
173.2 m²
404.734 kr.
21. sep. 2011
25.500.000 kr.
31.000.000 kr.
173.2 m²
178.984 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026