OPIÐ HÚS - 3 íbúðir til sýnis, velkomin í OPIÐ HÚS - Bókið skoðun Jason sími 7751515 -jason@betristofan.is
Lýsing
Á árunum 2012-2024 var húsið allt tekið í gegn, lagnir, þak, gluggar, lóð og þá vor íbúðirnar endurgerðar. Endurbætur voru unnar í samvinnu við Minjastofnun Íslands. Aðalinngangur er frá Laugavegi og einnig er bakinngangur hjá bílastæðum.
Íbúðin skiptist í anddyri/hol, stofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Íbúðinni fylgir 21,7 fm herbergi í kjallara sem er með aðgengi að baðherbergi.
1,8 fm sérgeymsla er í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi.
Íbúðin er um 73,2 fermetrar og auk herbergis og geymslu er hún samtals 97,3 fm.
Íbúðin:
Forstofa: Forstofa er flotuðu gólfi. Góð lofthæð er í íbúðinni.
Eldhús: Innrétting er ljós, uppþvottavél. Flot á gólfi og gluggi til norðurs.
Stofa: rúmgóð stofa með parketi á gólfi, tveir gluggar sem snúa til suðurs út á Laugaveg.
Tvö svefnherbergi með parketi: Fataskápar eru í stærra svefnherberginu.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu. Gluggi til norðurs. Salerni er upphengt.
Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Útgengi í baklóð.
Aukaherbergi, rúmgott 21,7 fermetrar. Sameiginlegt baðherbergi með sturtu er í sameign.
Geymsla: Sérgeymsla að stærðinni 1,8 fm er í sameign hússins.
Húsið: Glæsilegt mikið endurnýjað, þak, gluggar og ytra byrði. Stutt er í alla þjónustu, sundlaug, samgöngur og eignin er mjög miðsvæðis.
Lóðin er snyrtileg með einkabílastæðum.
Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og í netfangið jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.