Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Vista
fjölbýlishús

Dísaborgir 2

112 Reykjavík

84.900.000 kr.

789.767 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2235456

Fasteignamat

74.350.000 kr.

Brunabótamat

56.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
107,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

SÉRINNGANGUR, AFGIRTUR GARÐUR OG MERKT BÍLASTÆÐI
Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu bjarta og rúmgóða fimm herbergja fjölskylduíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Dísaborgir 2 í Borgahverfi, 112 Reykjavík. Úr stofu er útgengt á sérafnotaverönd og garð, eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og íbúðinni fylgir merkt bílastæði við húsið. Skóli, leikskóli og leikvellir eru í göngufæri og stutt er í alla þjónustu í Spönginni.

Stærð eignarinnar er 107,50 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Íbúðinni fylgir 3,7 fermetra sérgeymsla á jarðhæð.
Aðal sölupunktar:
  • Sérinngangur beint inn í íbúðina
  • Sérafnotaverönd og garður út frá stofu
  • Þrjú svefnherbergi, auðvelt er að bæta við fjórða svefnherberginu
  • Bjart og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu
  • Falleg hvít Brúnás eldhúsinnrétting með eyju
  • Parket á öllum herbergjum og alrými
  • Baðherbergi með baðkari og sturtugleri, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
  • Merkt bílastæði við húsið
  • Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
  • Barnvænt hverfi, skóli og leikskóli í göngufæri
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla á jarðhæð, sérafnotaverönd, merkt bílastæði og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Sérinngangur. Flísar á gólfi og stór fataskápur..
Eldhús: Falleg hvít Brúnás eldhúsinnrétting með eyju og góðu skápa- og vinnuplássi, bakaraofn í vinnuhæð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og gluggi er við vinnusvæðið. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt á sérafnotaverönd og garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum með speglahurðum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Gott herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Við forstofu, með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu og sturtugleri, innrétting undir handlaug, spegill, salerni, ofn og opnanlegur gluggi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 3,7 fermetra sérgeymsla fylgir.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Verönd og garður: Sérafnotaverönd út frá stofu, um 5,6 x 10,4 metrar samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Bílastæði: Merkt bílastæði fylgir íbúðinni.

Húsið: Steinsteypt fjölbýlishús byggt 1997.

Nýlegar framkvæmdir:
  • 2024: Ný eldhúsinnrétting frá Brúnás
  • 2024: Nýjar innihurðir og hurðakarmar
Staðsetning: Dísaborgir eru í Borgahverfi í Grafarvogi, rólegu og barnvænu hverfi þar sem skóli, leikskóli og margir leikvellir eru í göngufæri. Stutt er í Spöngina með Bónus, heilsugæslu og annarri þjónustu, og Egilshöll og Grafarvogslaug eru skammt undan. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja um hverfið.

Björt og rúmgóð fjölskylduíbúð með sérinngangi, sérafnotaverönd og merktu stæði á góðum stað í Grafarvogi.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. ágú. 2022
48.350.000 kr.
75.000.000 kr.
107.5 m²
697.674 kr.
6. mar. 2020
43.850.000 kr.
48.500.000 kr.
107.5 m²
451.163 kr.
15. des. 2015
25.800.000 kr.
33.900.000 kr.
107.5 m²
315.349 kr.
16. feb. 2014
23.350.000 kr.
28.500.000 kr.
107.5 m²
265.116 kr.
26. maí. 2008
22.180.000 kr.
25.400.000 kr.
107.5 m²
236.279 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður