Opið hús: Grettisgata 98, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 12. nóvember 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:30.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala, í síma 661-6021 eða á hreidar@betristofan.is.
Frábær staðsetning á rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Öll helsta þjónusta, verslanir, kaffihús og veitingastaðir Laugavegar og miðbæjarins eru í þægilegu göngufæri. Stutt er í almenningssamgöngur, skóla á öllum námsstigum og helstu stofnanir.
Framkvæmdir undanfarinna ára:
2020: Geymslu í risi breytt í svefnloft; tenglum og lýsingu bætt við.
2021–2022: Umfangsmikið viðhald á öllu húsinu. Þak endurnýjað, skipt um flestalla glugga, bakhurðir endurnýjaðar, múrviðgerðir gerðar, þakkantur endursteyptur og þakniðurföll endurnýjuð.
2022: Breytingar þar sem þaksvölum var bætt við hjá þakkvisti.
2024: Nýjar rúður í tveimur gluggum og nýir gluggalistar í þakkvisti.
2024: Nýr slaufuloki settur við hitagrind og ofnakerfi yfirfarið.
2024: Rafmagn yfirfarið, skipt um rofa og tengla, nýtt efni sett í dósir og ný lok á loftdósir.
2024: Alrými heilmálað.
2025: Nýtt dyrasímakerfi sett upp.
2026: Skipt um gömlu rafmagnstöfluna og sett upp ný innfelld tafla.
2026: Baðherbergi/þvottahús endurnýjað: Gert upp frá grunni. Skipt út lögnum, flísalagt og málað. Sett upp ný sturta, innréttingar og rennihurð.
Nánari lýsing:
Forstofa / hol: Komið er inn í forstofu/hol sem tengir saman rými eignarinnar. Búið er að útbúa svefnloft við inngang sem nýtist ýmist sem auka svefnaðstaða eða geymsluloft.
Alrými: Hjarta íbúðarinnar er bjart, rúmgott og heillandi alrými með mikilli lofthæð upp í mæni og sýnilegum, hvítmáluðum sperrum/bitum með innfelldri lýsingu sem gefa rýminu mikinn svip. Rýmið sameinar stofu, borðstofu og eldhús í eina bjarta heild. Gengið er út á svalir úr alrými.
Stofa: Mjög rúmgóð, opin og björt með fjölmörgum þakgluggum sem hleypa mikilli dagsbirtu inn og skapa notalega stemningu. Hún tengist eldhúsi mjög vel.
Eldhús: Opið að hluta inn í stofu. Innréttingin er hvít og stílhrein með góðu skápaplássi ásamt praktískri eyju/hálfeyju með gegnheilli viðarborðplötu og setplássi fyrir barstóla. Innréttingin skartar innfelldum ofni, spanhelluborði, hvítum vaski og fallegum flísum milli skápa. Á gólfi eldhúss og borðkróks eru dökkgráar flísar sem mynda flotta andstæðu við parketið.
Baðherbergi / þvottahús: Endurnýjað á sérlega smekklegan og vandaðan hátt. Veggir eru klæddir fallegum, lóðréttum grænum flísum og á gólfi eru stórar ljósgráar flísar. Hornsturta með glerhurðum og stórum regnsturtuhaus. Vegleg innrétting úr ljósum við með góðum skúffum og hvítum vaski ásamt stórum, hringlaga spegli og handklæðaofni á vegg. Rýmið nýtist jafnframt sem þvottahús með sérsmíðaðri innréttingu, góðu geymslu- og vinnuplássi ásamt tengi og plássi fyrir þvottavél/þurrkara undir borðplötu. Stór þakgluggi veitir mikla dagsbirtu og góða loftun.
Salerni: Sér salerni með upphengdri skál, innbyggðum vatnskassa og krómuðum þrýstihnappi á vegg. Lítil og nett handlaug með krómuðu blöndunartæki. Veggir eru flísalagðir að hluta með ljósum flísum. Hagnýtur speglaskápur er fyrir ofan salerniskassa ásamt auka veggspegli við hlið handlaugar.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum gólffleti og innbyggðum fataskáp.
Sérgeymsla: Staðsett á stigapalli við inngangshurð íbúðar.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Garður: Sameiginlegur, afgirtur og gróinn garður bak við hús.
Bílastæði: Næg bílastæði eru í götunni (gjaldskyld stæði). Íbúar eiga rétt á íbúakorti samkvæmt gildandi reglum borgarinnar.
Um er að ræða virkilega skemmtilega og fallega eign á frábærum stað í miðborginni þar sem öll þjónusta og verslun er í göngufæri. Stutt er í útivistarsvæði á borð við Klambratún, Öskjuhlíð og Hljómskálagarð, auk þess sem mikil uppbygging hefur átt sér stað við Hlemm og nærliggjandi svæði.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6021 eða gegnum netfangið hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.