Upplýsingar
Byggt 2006
154,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 12. nóvember 2026
kl. 16:45
til 17:30
Opið hús: Baugakór 6, 203 Kópavogur, Neðri hæð til vinstri. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 12. nóvember 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og björt neðri sérhæð með sér inngangi og góðum innangengum bílskúr á þessum vinsæla stað í Kórahverfinu í Kópavogi. Stór timbur verönd og lokaður garðskáli undir svölum efri hæðar sem er samþykktur og skráður 9,6 fm. Þvotthús er innan íbúðar. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun og alla helstu þjónustu. Stutt er í náttúru og góðar gönguleiðir. Eignin getur verið laus fljótlega.Um er að ræða þriggja herbergja 129,9 fm íbúð ásamt bílskúr 24,2 fm og garðskála 9,6 fm, samtals 154,1 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa: Lokuð, flísar á gólfi og fataskápur upp í loft.
Eldhús: Rúmgott, viðar innrétting sem nær upp í loft. Innbyggð uppþvottavél. Flísar á gólfi og á milli skápa.
Stofa/ borðstofa: Bjartar og rúmgóðar stofur, parket er á gólfi. Útgengt er í garðskála og verönd frá stofum.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi, fataskápar upp í loft. Parket er á gólfi.
Aukaherbergi: Herberginu hefur verið breytt frá teikningu. Búið er að stækka það á kostnað geymslu. Herbergið er rúmgott. Fataskápur er upp í loft og parket á gólfi. Auðvelt væri að stúka geymslu af rýminu aftur.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Góðar innréttingar. Góð sturta með hertu gleri, ( walk in sturta).
Þvottahús: Flísar á gólfi, góð innrétting. Gluggi.
Geymsla: Í dag er bílskúr nýttur sem geymsla. Auðvelt væri að stúka geymslu aftur frá aukaherbergi.
Bílskúr: 24,2 fm. Flísar á gólfi. Hurðaropnari og heitt og kalt vatn.
Húsið var sílonborið sumarið 2019 og einnig var skipt um dúk á þaki að sögn eiganda.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook