Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1972
75,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Aðkoma að húsinu er frá Grandavegi og snýr íbúðin aðeins í þá átt. Íbúðin er skráð 75,7 fm og skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og 6,1 fm sér geymslu í kjallara. Sérmerkt stæði fyrir húsið eru á lóðinni.Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Gengið er inn úr snyrtilegri sameign og inn í rúmgott hol með fatahengi.
Stofa: Rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á góðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Nýlega endurnýjað með innréttingum frá Brúnás, góðu skápa- og vinnuplássi og bakaraofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og góðum fataskáp frá Brúnás.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert með "walk in" sturtu, innréttingum frá Brúnás, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: 6,1 fm sér geymsla í kjallara.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Frábær staðsetning í góðu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði.
Viðhald og framkvæmdir samkvæmt eiganda :
Járn á þaki endurnýjað og gluggar á austurhlið endurnýjaðir með hljóðeinangrandi gler fyrir um 10 árum. Þakið var málað 2024. Það var drenað 2023. Hús múr viðgert 2024. Önnur grein kaldavatnslagnar húsins var hreinsuð og fóðruð 2025.
Nánari upplýsingar veitir:
Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali, í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. ágú. 2023
45.650.000 kr.
55.000.000 kr.
75.7 m²
726.552 kr.
20. nóv. 2020
35.250.000 kr.
42.800.000 kr.
75.7 m²
565.390 kr.
5. nóv. 2015
22.150.000 kr.
26.000.000 kr.
75.7 m²
343.461 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026