Opið hús: Sílakvísl 21, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari lýsing; Komið er inn í forstofu með fatahengi. Hol. Gestasnyrting.
Stórt eldhús með góðri innréttingu og borðkrók.
Stofa og borðstofa þaðan sem útgengt er á svalir til vesturs.
Frá holi er stigi uppá eftir hæð. Komið er á pall með skáp.
Svefnherbergin eru þrjú og er skápur í einu þeirra. Flísalagt baðherbergi með baðkari, innréttingu, t.f. þvottavél og glugga.
Geymsla er í risi, útdraganlegur stigi frá palli.
Gólfefni; Parket er á öllum gólfum nema, forstofa, gestasnyrting og baðherbergi er með flísum.
Í sameign er hjólageymsla auk þess er sameiginlegur geymsluskúr fyri íbúa húss á lóð.
Að sögn seljenda hafa þessar framkvæmdir verið á húsinu að utan undanfarið;
2018 geymsluskúr smíðaður í garði
2019 skipt um gler og glugga þar sem þurfti
2021 hús málað að utan
2022 skipt um Velux þakglugga
2024 tröppur og stigapallur endurbætt með hitavír í tröppum
2024 bílastæði máluð
2026 skipt um pappa og járn á þaki sumarið 2026
Í HEILD ER UM AÐ RÆÐA MJÖG GÓÐA ÍBÚÐ OG Á GÓÐUM STAÐ INNAN HVERFIS.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, ellert@gimli.is
Hluti mynda í auglýsingu eru unnar með gerfigreind.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...