Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Vista
einbýlishús

Grænamýri 13

600 Akureyri

65.900.000 kr.

627.619 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2146820

Fasteignamat

60.750.000 kr.

Brunabótamat

53.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1952
svg
105 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 17. nóvember 2026 kl. 16:15 til 17:00

Opið hús: Grænamýri 13, 600 Akureyri. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. nóvember 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.

Lýsing

Einar Pálsson lgf. og Borg fasteignasala kynna Grænamýri 13, Akureyri. Fjögurra herbergja einbýlishús sem er alls 105 m² að stærð með stórum garði.

Húsið er steinsteypt, reist ofan á steyptan kjallara og skiptist með eftirtöldum hætti; Kjallari, 18,3 m²: Gengið niður í kjallara úr forstofu að vestan. Kjallarinn skiptist í þvottarými, og tvö minni geymslurými. Hæð, 86,7 m²: Tveir inngangar, stofa, eldhús, 3 svefnherbergi og baðherbergi.

Tveir inngangar eru að eigninni, að austan og vestan. Flísar eru á gólfi í forstofum og á baðherbergi. Vínilparket á öðrum herbergjum, en í kjallara eru máluð gólf. Eitt svefnherbergi er með föstum fataskáp. Á baðherbergi er nýlegt upphengt klósett og baðkar.

Stór og fallegur gróin garður er við eignina, hann snýr í sólríka suðurátt. Þar er 50 fermetra afgirt hundagerði, og inn í því lítill geymsluskúr. Gróðurhús / vinnuaðstaða, u.þ.b. 15 fm, með heitavatnsofni og rafmagni er einnig á lóðinni. Bílastæði er á lóð austan við húsið með góðu aðgengi inn í garðinn. Vatnskrani er í garði við húsið að sunnanverðu, með köldu vatni. Þó nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á síðustu árum. Mest allt rafmagn er nýlegt og nýleg rafmagnstafla. Nýlegar hitalagnir, gólfihiti settur á öll rými nema svefnherbergi, þar eru nýlegir ofnar og lagnir. Fræst var í gólf, flotað og lagður gólfhiti árið 2020. Gler endurnýjað að hluta á efri hæð, nýjir gluggar í kjallara. Nýlega var drenað í kringum húsið og settar sérsmíðaðar álþakrennur 2025. Nýlega var þak hreinsað af eldri einangrun og einangrað upp á nýtt með 10'' steinull. Stór fataskápur í einu svefnherberginu er nýlegur. Girðing í garði og kaldur geymsluskúr er nýlegt. Búið að grisja mikið af trjám og
runnum í garði. Ný dæla í brunni, sem er við húsið og tekur við öllu fráveituvatni.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is
-Eignin er í einkasölu.
-Vel staðsett eign, stutt í miðbæ, verslun, skóla og sundlaug.
-Núverandi skipulag er ekki í samræmi við teikningu.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

img
Einar Pálsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Einar Pálsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2020
31.500.000 kr.
34.000.000 kr.
105 m²
323.810 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Einar Pálsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík