Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vera Sigurðardóttir
Vista
einbýlishús

Ólafsgeisli 29

113 Reykjavík

169.900.000 kr.

854.628 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2256383

Fasteignamat

144.750.000 kr.

Brunabótamat

101.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
198,8 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 16. nóvember 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Ólafsgeisli 29, 113 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. nóvember 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á útsýnisstað í Ólafsgeisla Grafarholti.

* Einstök staðsetning og glæsilegt útsýni
* Nálægð við fallega náttúru
* Sólpallur, garður og bílskúr
* 5 svefnherbergi og 2 baðherbergi


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 198,80 m2 og þar af er bílskúr skráður 33,2 m2.

Eignin skiptist í forstofu, hol, stiga, eldhús, stofu / borðstofu, þvottahús, 2 baðherbergi, 5 svefnherbergi, geymslu og bílskúr.
Forstofa er flísalögð.
Hol er með parket á á gólfi. Stigi er flísalagður.
Þvottahús er flísalagt með vinnuborði, skolvask, skápum og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt út í garð.
Baðherbergi 1 er flísalagt með upphengdu wc, innréttingu með skolvaski, hornbaðkar.
Baðherbergi 2 er flísalagt með walkin sturtu, wc og innréttingu með skolvask.
Svefnherbergin eru fimm, öll með parket á gólfi og fataskápar í fjórum þeirra.
Eldhús er flísalagt í rúmgóðu opnu alrými með parketlagðri stofu / borðstofu. Góð lofthæð og fallega hannaðir gluggar setja skemmtilegan svip á rýmið.
Eldhús er með innréttingu með eldhúseyju, helluborði, tengi fyrir uppþvottavél og bakarofn í vinnuhæð.
Úr stofu er útgengt út á tvennar svalir úr stofu í suður og vestur með glæsilegu útsýni.

Sólpallur með skjólveggjum. Hellulagður göngustígur. Innangengur bílskúr er skráður 33,2 m2. Góð bílastæði við húsið.
Snyrtilegur tyrfður garður. Geymsluskúr er við húsið, ca 10 m2

Góðir göngu og hjólastígar umlykja Grafarholtið. Örstutt er í skóla og leikskóla. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík