Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður J. Tyrfingsson
Haraldur Björnsson
Vista
fjölbýlishús

Eskiás 3A

210 Garðabær

94.900.000 kr.

1.042.857 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2523634

Fasteignamat

75.750.000 kr.

Brunabótamat

69.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
91 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. nóvember 2026 kl. 14:00 til 14:30

Lýsing

Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu einstaklega bjarta og fallega 3-4 herbergja íbúð með sér inngangi og svölum á 3. hæð í snyrtilegu húsi við Eskiás 3a í Garðabæ. 

Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2023. Íbúðin er falleg og rúmgóð með 3 svefnherbergjum, stofu, borðstofu og eldhúsi í björtu alrými með útgengi á svalir.

Þetta er skemmtileg og frábær fjölskyldu íbúð á góðum stað í Garðabænum þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla og leikskóla. Íþróttasvæði Stjörnunnar, íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu, bókasafn og apótek í Litlatúni og á Garðatorgi.

Bókið skoðun: Unnur sími: 866-0507 eða unnur@gardatorg.is


Nánari lýsing:
Stofa og borðstofa: Bjart alrými með mikilli lofthæð, fallegum gluggum og parketi á gólfi. Gengið er út á svalir úr stofu.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, helluborði og bakarofni í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Opið er úr eldhúsi inni í stofu og borðstofu.
Svefnherbergin: Með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Ljós innrétting með skúffum, sturtuklefi og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Sér geymsla með glugga er innan íbúðar og er í dag notuð sem herbergi.
Í sameign er sameiginleg vagna og hjólageymsla.

Húsið Eskiás 3 er staðsteypt, einangrað að utanverðu og klætt og því viðhaldslítið. Öll bílastæði í hverfinu eru sameiginleg og gert er ráð fyrir rafhleðslubílastæðum. Djúpgámar fyrir sorp eru staðsettir á hornum lóðanna.
Í nágrenninu eru margar fallegar gönguleiðir um Ásana og Sjálandið, meðfram strandlengjunni og nærliggjandi svæði.

*Eignin getur verið laus fljótlega.

Allar upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteingasali sími: 866-0507 eða unnur@gardatorg.is


 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. júl. 2023
6.950.000 kr.
74.000.000 kr.
91 m²
813.187 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ