Opið hús: Kórsalir 5, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. nóvember 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum, tveimur stofum og tveimur baðherbergjum. Á sameign er hleðslustöð fyrir tvo bíla. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á að útbúa fjórða svefnherbergið á neðri hæð.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum, meðal annars hafa gólfefni og allar innihurðir verið endurnýjað, nýjar innréttingar settar í forstofu og þvottahús, gluggar yfirfarnir og endurbættir ásamt því að dren hefur verið lagfært og útveggur einangraður. Þá standa yfir lyftuskipti í húsinu árið 2026. Kostnaður á seljanda.
Nánari lýsing eignar
Efri hæð:
Forstofa: Sérinngangur í íbúðina. Nýjar flísar á gólfi og ný innrétting frá árinu 2026.
Eldhús: Eldhús með borðkrók. Flísar á milli efri og neðriskápa. Á einni eldhúsmynd hefur tvöfaldur ísskápur sem er í dag í eldhúsi verið fjarlægður, einfaldur ísskápur passar við innréttingu.
Stofa og borðstofa: Rúmgott alrými með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu.
Svefnherbergi: Svefnherbergi á efri hæð.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, baðinnréttingu, vaski og upphengdu salerni. Endurbætur voru gerðar á baðherberginu árin 2016 og 2017.
Þvottahús: Þvottahús með nýjum innréttingum og flísum á gólfi frá árinu 2026.
Neðri hæð:
Sjónvarpsstofa / alrými: Rúmgóð stofa sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Veggur stofu á teikningum er léttur(kíttaður ofan á parket), hægt að fjarlægja og nýta sem eitt rými.
Svefnherbergi I: Með parket á gólfum.
Svefnherbergi II: Með parket á gólfum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtu og baðkari. Endurbætur voru gerðar árið 2016, meðal annars á flísum, innréttingu og sturtuaðstöðu.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er innan íbúðar.
Útgengi er í sameign frá neðri hæð.
Nánar um endurbætur
2026
- Nýjar flísar á gólf í forstofu og þvottahúsi.
- Nýjar innréttingar í þvottahúsi og anddyri.
- Gluggar hússins málaðir.
- Unnið er að endurnýjun lyftu í húsinu.
- Skipt um gler og opnanleg gluggafög þar sem þörf var á.
- Gluggar og gler yfirfarin og gluggakarmar þéttir.
- Dren lagfært og einangrun sett á útvegg við íbúðina.
- Harðparket frá Harðviðarvali lagt á gólf.
- Allar innihurðir endurnýjaðar með hurðum frá Birgisson.
- Endurbætur á báðum baðherbergjum, meðal annars endurnýjun innréttinga, hreinlætistækja, blöndunartækja og sturtuaðstöðu.
- Upphengt salerni sett á baðherbergi efri hæðar.
- Grindverk sett utan um sérafnotareit við inngang árin 2013–2014.
- Screen-gardínur frá Sólar gluggatjöldum settar upp árin 2014–2015.
Íbúðinni fylgir sér afnotaréttur á lóð þar sem komið hefur verið fyrir grindverki við inngang. Í sameign hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Unnið er að endurnýjun lyftu í húsinu árið 2026.
Fyrir nánari upplýsingar eða bókun á skoðun hafið samband við Jón G. Sandholt, löggiltan fasteignasala, í síma 777-2288 eða á netfangið jon@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.