Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
118,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 17. nóvember 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 17. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 -  Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 118,4 m2 parhús á einni hæð á eftirsóttum stað við Lerkibyggð 1 í Mosfellsbæ. Mjög stór afgirt timburverönd í suðvesturátt. Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og tvær geymslur innan hússins. Eignin stendur á 1.107,7 m2 eignarlóð sem er sameiginleg með Lerkibyggð 3 í jaðrinum á eldra hverfi við Grenibyggð í Mosfellsbæ. Á lóðinni eru tveir sérafnotafletir samkvæmt afstöðumynd. Annar hluti lóðar er í óskiptri sameign. Mikill gróður er umhverfis lóðina sem stendur á fallegum stað rétt við Varmá.  Frábær staðsetning í grónu og friðsælu hverfi í Mosfellsbæ, með leikskóla í næsta nágrenni.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum. Gólfhiti og innbyggð lýsing. Aðgengi er upp á rúmgott geymsluloft í forstofu.
Stofa og borðstofa er rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing. Útgengt er á timburverönd í suðvesturátt. 
Eldhús er opið við stofu með parketi á gólfi og fallegri L-laga innréttingu ásamt veggfastri eldhúseyju. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Innbyggð lýsing. Úr eldhúsi er útgengt á timburverönd í suðvesturátt.
Gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, handlaug, "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gólfhiti og innbyggð lýsing. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, skolvaski og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslurnar eru tvær; önnur inn af forstofu með flísum á gólfi, hin inn af gangi með parketi á gólfi.

Fyrirhugað fasteignamat árið 2027 er 108.700.000 kr.

Verð kr. 114.900.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. júl. 2018
31.250.000 kr.
40.000.000 kr.
118.4 m²
337.838 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ