Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Atli S. Sigvarðsson
Vista
fjölbýlishús

Orrahólar 7

111 Reykjavík

63.900.000 kr.

671.924 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2049972

Fasteignamat

65.100.000 kr.

Brunabótamat

59.040.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
95,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 23. nóvember 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Orrahólar 7, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 06 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. nóvember 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala kynnir Orrahólar 7, 6. hæð, íbúð 603. Vel skipulagða 95,1 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð með rúmgóðum svölum með svalalokun til suðurs í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi með lyftu við Orrahóla 7 í Reykjavík. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni (merkt 7c). Afar glæsilegt útsýni er frá íbúðinni yfir Elliðavatn, út á sundin, að Bláfjöllum, Esjunni, Móskarðshnjúkum, Snæfellsnesi, Akrafjalli, Hellisheiði og víðar . Eldhús er með borðkrók. Stofa er mjög rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Myndavéladyrasími er í húsinu og eftirlitskerfi í sameign. Rafmagnsopnun á hurðun í sameign jarðhæðar. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni eingöngu fyrir þær íbúðir sem eru á hæðinni. Einnig eru tenglar fyrir þvottavél/þurrkara innan baðherbergis íbúðar.

Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús. Sérmerkt stæði á lóð. Frágengin og gróin lóð með fallegri aðkomu að húsinu. Sameign er afar snyrtileg með flísum og teppi á sameign. Sameiginlegar svalir á hæðinni til vesturs. Nýleg rafmagnstafla í sameign hússins. 

Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarparadís við Elliðaárdalinn. Sutt er í verslun og þjónstu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í göngufjarlægð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Með  fataskápum. Parket á gólfi. Hálfur veggur aðskilur forstofu frá stofu.
Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Afar glæsilegt útsýni og útgengi á yfirbyggðar suðursvalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og með svalalokun. Glæsilegt útsýni út á Elliðavatn og til fjalla.
Eldhús: Með parket á gólfi og eldri viðar eldhúsinnréttingu. Flísar á milli innréttinga. Borðkrókur og gluggi til norðurs með fallegu útsýni út á sundin og til fjalla.
Hjónaherbergi: Með dúk á gólfi, skáp og glugga til norðurs.
Svefnherbergi: Með dúk á gólfi og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, salerni, vaskur og gluggi til norðurs.
Hægt er að fá flest húsgögn með í kaupum.

Sérgeymsla: Íbúðar er staðsett á jarðhæð sem er 7,1 fermetrar að stærð.
Bílastæði í bílakjallara: Sérmerkt bílastæði, merkt 7C er í bílakjallara.

Í sameign:
Sameiginlegt þvottaherbergi: fyrir eingöngu þær íbúðir sem eru á hæðinni. Málað gólf, þvottasnúrur, sér tenglar fyrir hverja íbúð og gluggi til norðurs.
Vagna- og hjólageymsla: Er rúmgóð og með máluðu gólfi. Snyrtileg með gluggum og útgengi á baklóð.

Allar nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Páll Þórólfsson, sími 8939929 - pall@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Páll Þórólfsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Páll Þórólfsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Páll Þórólfsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík