Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
raðhús

Brekkutangi 21

270 Mosfellsbær

176.400.000 kr.

646.865 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2083206

Fasteignamat

134.000.000 kr.

Brunabótamat

128.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
272,7 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýja eign í sölu; Brekkutangi 21 er vel skipulagt fjölskylduvænt raðhús með aukaíbúð á góðum stað í Mosfellsbænum.
Eignin sem er skráð 257,7 fm. skv. fasteignaskrá HMS er í raun nokkuð stærra eða 303 fm. samtals. Munar þar um viðbyggingu ofan á svölum (15 fm) og óskráð rými í kjallara. Húsið er á þrem hæðum með aukaíbúð í kjallara og rúmgóðum bílskúr (31,2 fm).

Nánari lýsing; Forstofa er flísalögð með fataskáp. Gestasalerni er inn af forstofu.
Komið er inn í hol sem tengir stofur og önnur rými hæðarinnar.
Eldhúsið er með eldri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ágætt geymslupláss og vinnurými, barborð/bekkur sem hægt er að sitja við.
Stofan er björt með góðri borðstofu og setustofu með arni. Gengið er út í garð um svalahurð í stofu. Gott herbergi var gert úr hluta stofunnar, auðvelt að breyta til baka og fá stærra stofurými.
Efri hæð er vel skipulögð með 5 herbergjum;
1. Hjónaherbergi með fataskápum og hurð út á svalir
2. Barnaherbergi sem nú er notað sem skrifstofa
3. Svefnherbergi með fataskáp
4. Svefnherbergi með fataskáp
5. Nýtt, 15 fm. herbergi með gólfhita og þiljuðu lofti er viðbygging skv. samþykktum teikningum, byggt var yfir hluta svala en í framhaldi af herberginu eru stórar svalir (16 fm) í norður. Þetta rými er tilvalið sem fjölskylduherbergi en getur einnig nýst sem rúmgott svefnherbergi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með gólfhita, innréttingu, upphengdu salerni og stórri og góðri "walk-in" sturtu, gluggi er opnanlegur.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð- góð vinnuaðstaða.
Auka íbúð - á jarðhæðinni er rúmgóð íbúð með sérinngangi, endurnýjuð 2013 þ.m.t. raflagnir, innréttingar, gólfefni og skápar.
Forstofan er rúmgóð og flísalögð. Stofan er rúmgóð með gluggum í suður, inn af henni er ágætt herbergi með fataskápum. Eldhúsið var endurnýjað 2019, það er rúmgott með nýlegri innréttingu og borðkrók, inn af eldhúsinu er rúmgóð geymsla ( hluti af óskráðu rými undir bílskúrnum ca 31 fm).  Baðherbergi var endurnýjað á vandaðan máta, stór "walk-in" sturtuklefi , upphengt salerni, innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Öflugt lofræstikerfi er tengt inn í baðherbergi og eldhús. Stigi milik hæðanna er til staðar og einfalt að opna aftur þannig að neðsta hæðin/aukaíbúð tilheyri aðal íbúðinni.
Bílskúrinn er 31,2 fm. er með góðri lofthæð, gluggum meðfram austurhliðinni, heitu/köldu vatni, rafmagni og gönguhurð á hliðinni sem snýr að inngangi í húsið. Innst í bílskúrnum er aukaherbergi sem nú er nýtt sem leiksvæði og líkamsræktaraðstaða. Góð aðkoma er að húsinu, hellulagt bílastæði með hitalögn undir og nýleg rafhleðslustöð.
Þetta er vel skipulagt og fjölskylduvænt hús sem hefur fengið gott viðhald og mikið verið endurnýjað. Brekkutangi er vel staðsett með tilliti til þarfa fjölskyldunnar, grænt svæði með leiksvæði og fótboltavelli skammt frá, stutt er í skóla, leikskóla, og íþróttamannvirki. Þá er stutt í verslun og þjónustu í miðbæ Mosfellsbæjar.

Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. maí. 2010
40.750.000 kr.
41.090.000 kr.
257.7 m²
159.449 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone