Opið hús: Tröllakór 18-20, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 06. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. nóvember 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Nánari upplýsingar veita Brynjólfur Snorrason, brynjolfur@aldirfasteignir.is og/eða Sveinn Eyland, sveinn@aldirfasteignir.is
Nánari lýsing.
Anddyri: Sérinngangur, rúmgott með flísum á gólfi.
Hol/skáli: Tengir saman önnur rými eignar.
Eldhús: Stór innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og fyrir enda rýmis er borðkrókur undir glugga með opnanlegu fagi.
Borð- og setustofa: Falleg og björt með stórum hornglugga og útgengi á stóra suður verönd eignar.
Svefnherbergi 1: Skráð 9 m2 á teikningu, vínildúkur á gólfi og fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi 2: Skráð 10 m2 á teikningu, vínildúkur á gólfi, fataskápur innan herbergis.
Hjónaherbergi: Skráð 15 m2 á teikningu, vínildúkur á gólfi, stórir fataskápar innan herbergis og horngluggi.
Baðherbergi: Falleg innrétting með góðum neðri skápum og spegli fyrir ofan handlaug. Vegghengt WC, baðkar, sér sturtuklefi, handklæðaofn auk opnanlegs glugga fyrir ofan baðkar. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Þvottahús: Hvít innrétting með ágætu vinnuborði, hillum þar fyrir ofan, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og flísar á gólfi.
Á gólfum íbúðar er fallegt vínilparket utan andyris, baðherbergis og þvottahúss þar sem eru flísar.
Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar, sameiginleg hjólageymsla, önnur sameiginleg vagnageymsla auk þess sem eign tilheyrir sér stæði (merkt 01B20) í lokuðum bílakjallara þar sem einnig er þvottaaðstaða.
Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru.
Nánari upplýsingar veita Brynjólfur Snorrason, brynjolfur@aldirfasteignir.is og/eða Sveinn Eyland, sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.