Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Bræðraborgarstígur 7 (402)

101 Reykjavík

109.000.000 kr.

897.119 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2227618

Fasteignamat

98.000.000 kr.

Brunabótamat

58.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1946
svg
121,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Háborg fasteignasala og Þórunn Páls lgf  kynna íbúð 402 er glæsileg fimm herbergja útsýnisíbúð með 20,7 fm þaksvölum til vesturs og 4,5 fm svölum til austurs í þessu glæsilega lyftu húsi í hjarta Gamla Vesturbæjarins. Birt flatarmál er 121,5 fm þar af er íbúð 114,3 fm og geymsla í kjallara 7,2 fm. Tvær stórar samliggjandi stofur með glæsilegu útsýni og útgengi á þaksvalirnar.  Tvö stór svefnherbergi annað er 14 fm og með góðum skápum og hitt í kringum 11 fm.  Gott eldhús og vel innréttað þvottaherbergi með útgengi á austursvalirnar.  Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga.  Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is

Eignin er ekki í samræmi við samþykktar teikningar að því lleyti að minnsta svefnherbergið er ekki til staðar og er stofan stærri sem því nemur.  Eins er herbergið við hliðina á þvottaherberginu í kringum 11 fm en ekki 8,6 fm þar sem innsti hluti gangsins er ekki til staðar og herbergið er stærra sem því nemur. Stofa og borðstofa eru alveg í einu rými en búið er að fjarlægja vegg sem var á milli.

Góður fataskápur er á vinstri hönd þegar gengið er inn í íbúðina en bjartar stórar stofur á hægri hönd.  Á vinstri hönd er baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf með vönduðum bleikum og hvítum flísum.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og þar er bæði baðker og sturtuklefi.     Næst er eldhúsið sem er með góðu vinnuplássi og fallegum útsýnisglugga til austurs.  Við hliðina á því er þvottahús með mjög góðu skápaplássi, stóru vinnuborði og skolvaski.   Útgengt er á svalir til austurs með fallegu útsýni.  Við hliðina á þvottahúsinu er rúmgott svefnherbergi með glugga til austurs og á móti því er  hjónaherbergið með góðum skápum og útgengi á glæsilegar þaksvalirnar sem eru 20,7 fm er frábæru útsýni  og eru mikill kostur við eignina.  Stofurnar eru mjög stórar og bjartar með frábæru útsýni  og annar útgangur á svalirnar er úr stofu.

Einstaklega heillandi og skemmtileg íbúð í lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í hjarta Gamla Vesturbæjarins þar sem stutt er í veitingastaði og þjónustu og sólarlagið svíkur engan.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Páls lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is





 

img
Þórunn Pálsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík