Upplýsingar
Byggt 1924
117,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 23. nóvember 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Laufásvegur 10, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Laufásvegur 10, 101 Reykjavík. Glæsileg algjörlega endurnýjuð 3ja herbergja 96,8 fm íbúð á 3 hæð í vönduðu mikið endurnýjuðu húsi á einstaklega góðum útsýnisstað. Bílskúr 20,7 fm og sérbílastæði. Samtals birt stærð er 117.5 fm. Endurnýjað eldhús, baðherbergi, gólfefni, skápar, innihurðir, ofnar og ofnalagnir, raflagnir og fl. Húsið er endursteinað, nýtt þak á húsinu , nýjir gluggar, gler og svalahurðir í íbúðinni. Húsið fékk fegrunarviðurkenningu fyrir endurbætur árið 2011. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara en tengi fyrir þvottavél á baðherbergi íbúðarinnar.Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 200-6670, nánar tiltekið eign merkt 03-02. Ibúðin er skráð 96,8 fm og þar af er sérgeymsla í sameign merkt 00-04 skráð 8 fm. Eigninni fylgir bílskúr merktur 02-01-01 stærð bílskúrs er 20,7 fm , birt heildarstærð 117.5 fm. Svalir eru til vesturs út frá báðum stofum og eru skráðar 4,6 fm.
Eignin skiptist í:Forstofu/gang, rúmgott svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og baðherbergi.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar: Sameiginlegur inngangur:
FORSTOFA/GANGUR: með nýlegu parketi og skápum.
ELDHÚS: Eldhúsið er með nýlegri innréttingu með innfelldum tækjum, parket.
BAÐHERBERGI: Baðherbergið er flísalagt , "walk in" sturta, innrétting, vegghengt salerni , innrétting og handklæðaofn, gluggi er á baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.
STOFA 1/BORÐSTOFA: Rúmgóð stofa/borðstofa með nýlegu parketi, gengið út á svalir með ÓVIÐJAFNANLEGU útsýni yfir tjörnina, ráðhúsið , fríkirkjuna og fl.
STOFA 2/DAGSTOFA: Rúmgóð stofa með nýlegu parketi , gengið út á svalirnar með sama útsýni.
Mjög auðvelt að breyta annarri stofunni í svefnherbergi og var það þannig áður.
SVEFNHERBERGI: Svefnherbergið er óvenju rúmgott með nýlegum fataskápum og er nýlegt parket á gólfi.
MJÖG BJÖRT OG SKEMMTILEG ÍBÚÐ Á ÞESSUM FRÁBÆRA STAÐ Í MIÐBORGINNI.
SAMEIGN: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél og sérgeymsla íbúðarinnar sem er með nýlegum glugga.
BÍLSKÚR: Bílskúrinn er staðsettur við hlið hússins með rafmagnsopnara og fyrir framan er rúmgott einkastæði fyrir íbúðina. Hitalagnir eru í bílaplani.
EINSTAKLEGA GLÆSILEGT ÚTSÝNI ER ÚR ÍBÚÐINNI.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook