Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
140,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. nóvember 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Sogavegur 160, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. nóvember 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna eignina Sogaveg 160. Um er að ræða fallegt og talsvert endurnýjað 4–5 herbergja einbýlishús með mjög góðum og rúmum bílskúr á frábærum stað í lokuðum botnlanga. Eignin er alls 140,2 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðarhúsið skráð 103,0 fm og bílskúrinn 37,2 fm. Efri hæðin er að hluta undir súð og nýtist því stærri en skráðir fermetrar gefa til kynna.
Lóðin er stór, vel ræktuð og skjólsæl með timburpöllum, hellulagðri verönd og góðri grasflöt. Nýlega hafa verið sett upp heitur pottur og útisturta. Á lóðinni er jafnframt góður geymsluskúr og skýli fyrir útihúsgögn og grill. Húsið hefur verið endurnýjað að hluta, meðal annars hefur þak verið endurnýjað, gluggar og gler að hluta, klæðning og hluti lagna.

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi.
Úr forstofu er komið inn í hol með parketi á gólfi og góðum skápum.
Eldhús er með endurnýjaðri innréttingu og borðkrók. Útgengt er úr eldhúsi á verönd til suðurs.
Þvottahús og snyrting eru í sameiginlegu rými. Korkur er á gólfi og þvottaaðstaða er til staðar.
Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Góður timburstigi liggur upp á efri hæð sem er að hluta undir súð.
Sjónvarpshol er parketlagt og þaðan er gengið út á norðursvalir með glæsilegu útsýni. Möguleiki er á að loka holinu og nýta sem þriðja svefnherbergið.
Hjónaherbergi er ágætlega rúmgott og með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er með sturtuklefa og góðum skápum. Korkur er á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður með góðri innkeyrsluhurð. Geymslurými er bæði við bílskúrinn og í sérstökum geymsluskúr á lóðinni.
Annað:
Heitur pottur og útisturta hafa nýlega verið sett upp.
Stórir timburpallar og hellulögð verönd eru á lóðinni.
Á lóðinni er skýli fyrir útihúsgögn og grill ásamt góðum geymsluskúr.

Hér er um að ræða vel skipulagt einbýlishús með rúmgóðum bílskúr og skjólsælli lóð. Útisvæðið sem er mikill sælureitur, með heitum potti og útisturtu, býður upp á frábæra aðstöðu til að njóta útiveru jafnt sumar sem vetur.
Hér er sjón sannarlega sögu ríkari.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 895-5198 eða í tölvupósti á bjossi@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. apr. 2025
96.800.000 kr.
114.500.000 kr.
10101 m²
11.336 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone