Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2004
svg
228,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilegt einbýli á eftirsóknarverðri sjávarlóð við Hjallatanga 22 í Stykkishólmi.  Staðsetning hússins er frábær í nánd við náttúruna og með einstöku útsýni  út á víðfeðman Breiðafjörðinn.  Húsið sem byggt er árið 2004 er fallegt og mjög vandað 160,5fm steinsteypt einbýlishús ásamt  67,9 fm.sambyggðum tvöföldum bílskúr samtals 228,4 fm.  
Bókaðu skoðun hjá Bjössa því hér er sjón sannarlega sögu ríkari.


Eignin skiptist þannig:

Forstofa: Flísar á gólfi og veglegir fataskápar.
Gestasnyrting: Flísar í hólf og gólf.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum. Rúmgóðar og bjartar stofur með stórum útsýnisgluggum. Flísalögð sólstofa með einstöku útsýni. Útgengt á veröndina.
Sjónvarpshol: Parket á gólfum og útgangur út á stétt sem liggur að þvottasnúrum og bakdyr bílskúrs.
Svefnherbergishol: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf með góðri sturtuaðstöðu og baðkari. Upphengt klósett. Handklæðaofn.
Herbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Parket á gólfi. 
Herbergi II: Parket á gólfi og skápur.
Herbergi III: Parket á gólfi og skápur.
Eldhús: Vönduð innrétting með ágætis skápaplássi. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Góð innrétting, sturtuklefi og vaskur. Flísar á gólfum. Útgengt.
Bílskúr: Tvöfaldur og rúmgóður. Margir gluggar. Bjartur. Sjálfvirkur hurðaopnari. 

Annað: Húsið hefur notið góðs almenns viðhalds í gegnum tíðina. 

Hér er á ferð vel skipulagt einbýli og frábært tækifæri til þess að eignast vandaða eign á sannarlega einstökum stað í Hólminum fagra.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is 

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone