Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Atli S. Sigvarðsson
Vista
fjölbýlishús

Bogahlíð 9

105 Reykjavík

115.900.000 kr.

787.899 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2030959

Fasteignamat

100.950.000 kr.

Brunabótamat

78.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1957
svg
147,1 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: 
Bogahlíð 9, fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 147 fm endaíbúð með gluggum á þrjá vegu í Hlíðunum. Íbúðin sjálf skiptist í forstofu og gott hol með fataskáp og tengingu við svefnherbergisálmu með 3 herbergjum, baðherbergi, gestasnyrtingu (í dag nýtt sem þvottahús), eldhús, stofu og  borðstofu. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði. Í sameign á jarðhæð eru auk þess sér herbergi/útleigueining með glugga auk þess sem tvær geymslur tilheyra íbúðinni.


Framkvæmdir innan íbúðar
2019: Baðherbergi endurnýjað
2019: Ný gólfefni og listar
2019: Nýjar hurðir
2019: Nýtt rafmagn, tafla og tenglar
2019: Ný tæki, vaskur, blöndunartæki og borðplata í eldhúsi

Framkvæmdir á sameign
2026: 
Ný teppi og stigagangur málaður
2025: Innihurðir í sameign
2024: Bílaplan hellulagt með hita og lagt fyrir rafmagni
2024: Ruslatunnuskýli fyrir flokkunartunnur
2023: Skólp myndað
2020/21: Viðgerðir á steypu, og steinað að utan og hvít svæði máluð
2020: Þak málað, nýjar þakrennur og niðurföll
2018: Þakrými einangrað 

Nánari lýsing
Komið er inn í opna forstofu/hol með skáp og vinnuaðstöðu en þaðan er hægt að ganga inn í eldhúsið en einnig er tenging við svefnherbergisálmu.
Út frá holi er gengið inn í endurnýjað baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug, gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi eru 3 í íbúðinni, rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og tvö herbergi auk gestasnyrtingar sem í dag er nýtt sem þvottahús. Herbergin tvö eru á sér gangi ásamt gestasnyrtingu og möguleiki á að aðskilja frá íbúðarrými.

Eldhús er með fallegri eldri innréttingu sem hefur verið sprautuð hvít. Tæki, vaskur, blöndunartæki og borðplata í eldhúsi voru endurnýjuð árið 2019. Eldhúsið er rúmgott með sérsmíðuðum bekk með geymsluhólfum. Gluggi og hurð út á svalir mót vestri bjóða upp á ágætt útsýni og gott birtuflæði.
Stofurnar tvær eru rúmgóðar og samliggjandi, björt rými enda stórir gluggar mót suðri og hliðargluggi (vestur) gengið er út á skjólgóðar suðursvalir úr borðstofunni, fallegur sérsmíðaður tekk veggur með innbyggðum skáp aðskilur setustofu og borðstofu að hluta.
Íbúðin sjálf er rúmgóð og býður upp á mikla möguleika, endurnýjað harðparket á gólfi.
Sameignin er mjög snyrtileg og var nýlega máluð auk þess sem skipt var um teppi. Á jarðhæðinni eru sameiginlegt þvottahús, sameiginileg vagna/hjólageymsla og læst hjólageymsla. Gengið er út í afgirtan og barnvænan garð sem liggur að mestu meðfram suður- og vesturhlið hússins.

Íbúðinni tilheyra tvær geymslur,  önnur gluggalaus (5,6 fm.) en hin rúmgóð með glugga (7,4 fm.) auk herbergis/útleigueiningu (11,6 fm)  með ofni og góðum glugga með opnanlegu fagi. Í sameign er snyrting. 
 
Húsið er virðulegt, steinað fjölbýlishús sem stendur á stórri og gróinni lóð með mjög góðri aðkomu, sér bílastæði fylgir hverri íbúð.
Staðsetning er góð, róleg umferð um Bogahlíðina, góð aðkoma og stutt í alla verslun, þjónustu og ýmsa afþreyingu. 
Þetta er einstaklega björt og skemmtilega skipulögð eign sem býður upp á töluverða möguleika varðandi nýtingu.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. sep. 2019
57.650.000 kr.
53.000.000 kr.
147.1 m²
360.299 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone