Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1959
83 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 28. nóvember 2026
kl. 14:00
til 14:30
Lýsing
HÖFÐI FASTEIGNASALA KYNNIR – STIGAHLÍÐ 20, 105 REYKJAVÍK.
Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja, 83,0 fm íbúð á fjórðu hæð hússins, með svölum og rúmgóðri sérgeymslu við Stigahlíð í Reykjavík. Um er að ræða mikið endurnýjaða eign á vinsælum og eftirsóttum stað í Hlíðunum. Umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir hafa farið fram á húsinu á undanförnum árum. Samkvæmt skráningu HMS er íbúðin 75,2 fm og sérgeymsla 7,8 fm, samtals 83,0 fm.
Lýsing: Forstofa með fatahengi. Hol með harðparketi á gólfi, opið að stofu, borðstofu og eldhúsi. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi. Frá borðstofu er gengið út á svalir. Eldhús með fallegri innréttingu frá árinu 2020, viftu, keramikhelluborði, harðparketi á gólfi og innbyggðri uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp frá árinu 2026. Svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og gólfhita, baðkari með sturtuaðstöðu, flísum á veggjum umhverfis baðkar, innréttingu, vegghengdu salerni, glugga, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Í mjög snyrtilegri sameign hússins er rúmgóð 7,8 fm sérgeymsla með glugga, sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla. Leiktæki eru í sameiginlegum garði hússins.
Endurbætur innan íbúðar: 2026 – Nýr fataskápur í hjónaherbergi. – 2021 – Skipt um innihurðir. – 2020 – Ný eldhúsinnrétting. – 2018 – Skipt um alla glugga íbúðarinnar og svalahurð. – 2016 – Nýir rafmagnsvírar dregnir í lagnir, tenglar og rafmagnstöflur endurnýjuð og sértafla sett upp fyrir eldhús og þvottavél. Skipt um öll gólfefni íbúðarinnar.
Viðhald og endurbætur hússins: Vel hefur verið hugað að viðhaldi hússins í gegnum árin, bæði innan sameignar og utanhúss. 2026 – Rafhleðslustöðvar settar upp. – 2025 – Umfangsmiklar utanhússframkvæmdir, m.a. gluggaskipti þar sem þörf var á, múrviðgerðir, viðgerðir á svölum og uppsetning handriða. – 2022 – Stigagangur málaður og teppalagður. – 2020 – Eldvarnarhurðir settar í íbúðir í stigaganginum. – 2018 – Múrviðgerðir og gluggaskipti í samræmi við ástandsskýrslu Verksýnar frá árinu 2016. – 2017 – Stétt fyrir framan húsið endurnýjuð, snjóbræðslulögn lögð og leiktæki sett upp í garði. – 2016 – Frárennslislagnir endurnýjaðar og dren lagt meðfram húsinu. – 2007 – Þakjárn endurnýjað.
Eignin er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, skóla og almenningssamgöngur. Kringlan er í næsta nágrenni og Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verzlunarskóli Íslands eru í göngufæri. Þá er stutt í fallegar göngu- og útivistarleiðir í Öskjuhlíð sem og miðborg Reykjavíkur. Falleg og mikið endurnýjuð eign í vel viðhöldnu húsi á eftirsóttum stað í Hlíðunum.
Frekari upplýsingar veitir:
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. des. 2020
39.550.000 kr.
43.500.000 kr.
83 m²
524.096 kr.
24. feb. 2016
24.250.000 kr.
29.500.000 kr.
83 m²
355.422 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026