Upplýsingar
Byggt 1976
314 m²
8 herb.
3 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og jason@betristofan.is kynnir: Hlyngerði 8, 108 Reykjavík.
Stórt einbýlishús að stærðinni 314 fermetrar og skiptist í 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi auk gestasnyrtingar, 3 stofur (stofu, borðstofu og arinstofu), eldhús, þvottahús, gufubað, bílskúr og geymslur.
Möguleiki er að gera aukaíbúð með sérinngangi á neðri hæð, með fyrirvara um samþykki byggingaryfirvalda.
Einstakt og vandað einbýlishús á pöllum í Hlyngerði byggt 1976, teiknað af Vífli Magnússyni. Húsið hefur verið vel viðhaldið.
Húsið er dæmigert fyrir íslenska byggingarlist áttunda áratugarins en ber jafnframt sterk einkenni arkitektsins, sem nam í Mexíkó. Loft eru viðarklædd með sýnilegum burðarbitum, lofthæð er víða mikil með bogadregnum dyraopum og gluggum. Stórir gluggar og opin rými hleypa ríkulegri birtu inn í húsið. Í húsinu eru tvö listaverk sem eru hluti af byggingunni: glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð í glugga stigagangsins og handrið eftir Jón Gunnar Árnason, höfund Sólfarsins.
Húsið er stórt og hentar vel fjölskyldu, með fimm svefnherbergjum, arinstofu og stórri stofu undir háu súðarlofti.
Það stendur á skjólsælli 784 m² verðlaunalóð þar sem tré og fjölærar plöntur ramma húsið inn og skapa einstakt skjól. Húsið stendur fyrir miðjum rólegum botnlanga þar sem aðeins eru 14 hús og umferð því lítil.
Staðsetningin er góð, miðsvæðis í borginni og stutt í leikskóla, skóla, framhaldsskóla, verslanir og þjónustu.
Einstakt arkitektahús eftir Vífil Magnússon, með listaverkum eftir Leif Breiðfjörð og Jón Gunnar Árnason, fyrir miðjum rólegum botnlanga. 314 m², fimm svefnherbergi, arinstofa, gufubað og innbyggður bílskúr.
Eignin er sýnd í einkasýningum. Bókið skoðun hjá Jasoni Kristni Ólafssyni, löggiltum fasteignasala, í síma 775 1515 eða á jason@betristofan.is.
Aðalhæð
Forstofa með flísum á gólfi og sérhönnuðum fataskáp með kínverskan dreka að fyrirmynd. Aðalinngangur er um rauðlakkaða útihurð með kínversku tákni fyrir „tvöfalda hamingju“, sem stendur fyrir hamingjusamt hjónaband og fjölskyldulíf.
Hol / skáli með mikilli lofthæð. Á gólfi er vönduð ullarteppi, lagt 2025, og loft er klætt panel með viðarbitum. Í holinu er glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð, og meðfram holinu og stiganum niður á neðri hæð er handrið eftir Jón Gunnar Árnason.
Gestasnyrting með marmara á gólfi og innréttingu. Handmálaður postulínsvaskur, fluttur inn frá Kína og skreyttur kínverskum myndum, ásamt gylltum blöndunartækjum.
Skrifstofa inn af holi með parketi og sérsmíðuðum bókahillum.
Eldhús með upprunalegri, sérsmíðaðri viðarinnréttingu og borðkrók. Korkflísar á gólfi. Tveir ofnar og helluborð eru upprunaleg og þarf að skipta út. Búr inn af eldhúsi með hillum.
Borðstofa með nýlegu parketi á gólfi (2023), hlöðnum og viðarklæddum veggjum, nýjum gluggum og svalahurð (2026) og útgengi á suður svalir.
Svalirnar eru mjög rúmgóðar, snúa í suður og eru einstaklega skjólgóðar. Eftir er að leggja nýjar flísar á svalirnar (sjá viðhaldslýsingu).
Stofa fjórum þrepum neðar, með nýlegu parketi á gólfi, nýjum ofnum, nýjum suðurglugga og hárri lofthæð undir viðarklæddu súðarlofti með dökkum bitum.
Bílskúr innbyggður og rúmgóður með bæði hita og rafmagni.
Neðri hæð
Bjartur gangur með inngangi í garð til austurs og vönduðu ullarteppi á gólfi, lagt 2025.
Þrjú rúmgóð og björt svefnherbergi, eitt parketlagt með fataskáp og tvö með korki á gólfi.
Hjónaherbergi er parketlagt, með sérsmíðuðum skápum og innangengu, flísalögðu baðherbergi með glugga, baðkari og sturtu.
Baðherbergi á svefnherbergisgangi er flísalagt með sturtu og glugga.
Arinstofa í miðju húsinu undir stigaopi, með útgengi á verönd og út í garðinn. Arinstofan er með fallegum náttúruflísum.
Inngangur á neðri hæð með skápum og flísum, inn af anddyri á neðri hæð er geymsla. Þvottahús með innréttingum. Rúmgóð gufa sem virkar mjög vel.
Lóð og aðkoma
Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu (hita í plani). Skjólsæl 784 m² verðlaunalóð með trjám og fjölbreyttum gróðri, verönd og svalir til suðurs. Garðarnir eru afmarkaðir með nýju grindverki til suðurs, austurs og norðurs (2023) og ruslatunnuskýli er framan við húsið (2025).
Viðhaldslýsing: Viðgerðir og endurbætur utanhúss 2026
Þak: Þéttilag þaks var endurnýjað. Allt þakjárn, áfellur, klæðning á veggjum sem ná upp fyrir þakflöt og annað var fjarlægt.
∙ Borðaklæðning yfirfarin, einungis þurfti að endurnýja nokkur borð við skorstein
∙ Nýtt þéttilag byggt upp sem; öndunardúkur, ásar og bárujárn. Nýjar áfellur, rennur og niðurfallsrör
∙ Loftunargrind sett á þakkanta og skorstein og þeir klæddir. Nýir hattar settir á alla kanta.
Gluggar: Skipt var um glugga í eldhúsi, glugga og svalahurð í borðstofu og suðurglugga í stofu.
Múrvinna: Framkvæmdar voru staðbundnar viðgerðir á útveggjum.
∙ Flísar á palli framan við aðalinngang voru endurnýjaðar, vatnsþétt undirlag var sett undir flísar
∙ Flísar á svölum borðstofu (suðurhlið) voru fjarlægðar og undirlag lagfært, sett var á það þéttiefni. Eftir er að leggja nýjar flísar.
∙ Skyggni fyrir inngangi, yfirborð lagfært og borið á það þéttiefni
∙ Tröppur meðfram húsi lagfærðar
Fyrri stærri endurbætur
∙ 2025: Nýtt ullarteppi og nýtt undirlag á stigagangi uppi og niðri. Ruslatunnur færðar fram fyrir hús og ruslatunnuskýli útbúið.
∙ 2023: Nýtt parket á borðstofu og stofu og nýir ofnar í stofu. Nýtt grindverk umhverfis garða til suðurs, austurs og norðurs og beð gerð meðfram því af garðyrkjumanni.
∙ 2000: Nýtt gler í alla glugga hússins.
∙ 1997: Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Parket lagt á hjónaherbergi.
Listaverk og sérstaða hússins
Helsta sérkenni hússins er stigahúsið, þar sem tvö listaverk eftir þekkta íslenska listamenn eru hluti af byggingunni.
Stigahandriðið er verk Jóns Gunnars Árnasonar, höfundar Sólfarsins, og var sérstaklega hannað fyrir húsið á árunum 1975–1976. Járnverkið er í lífrænum, samtengdum formum sem minna á kínverska myndlist.
Í glugga stigahússins er steindur gluggi eftir Leif Breiðfjörð, þar sem kínverskir drekar tákna árstíðirnar fjórar. Í dagsbirtu varpar litað glerið litum á handriðið og veggina.
Kínversk áhrif sjást víðar í húsinu, meðal annars í forstofuskápnum, handmálaða vaskinum á gestasnyrtingu og rauðu útihurðinni. Listaverkin eruhluti af byggingarlist og sögu hússins.
Um arkitektinn
Vífill Magnússon arkitekt er fæddur 17. desember 1938. Hann flutti til Mexíkó á sjöunda áratugnum, lærði þar arkitektúr og bjó þar í um tólf ár. Hann kom heim 1973, fékk starfsleyfi sem arkitekt í nóvember sama ár og hefur síðan rekið eigin teiknistofu. Teikningar að Hlyngerði 8 eru frá júní 1974 og húsið er því meðal fyrstu verka hans eftir heimkomuna.
Áhrifin frá Mexíkó má sjá víða í verkum Vífils, og í Hlyngerði 8 birtast þau í bogadregnum opum, grófri múrhúð, steinlögðum gólfum og viðarloftum með sýnilegum bitum.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali, sími 775 1515 - jason@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.