Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Boðagrandi 3

107 Reykjavík

69.900.000 kr.

823.322 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025026

Fasteignamat

72.050.000 kr.

Brunabótamat

42.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1981
svg
84,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 2. desember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Boðagrandi 3, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. desember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með tvennum svölum að Boðagranda 3, 107 Reykjavík. Tvö rúmgóð herbergi, baðherbergi með glugga, eldhús, rúmgóð stofa og tvennar svalir. Næg bílastæði. Nýir gluggar og svalahurð á suðurhlið íbúðarinnar. Húsið var málað að utan árið 2026. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, leikskóla, grunnskóla og íþróttir.  

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 84,9 m2 og þar af er sér geymsla 5,2 m2.

Nánar um eignina:

Anddyri með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri upprunalegri innréttingu, efri og neðri skápar með flísum á milli skápa, nýleg eldavél, gufugleypir, tengi fyrir uppþvottavél, rúmgóður eldhúskrókur og flísar á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar suður svalir úr stofunni. 
Hjónahebrergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Útgengt er út á norður svalir úr herberginu með fallegu óhindruðu sjávarútsýni. 
Herbergi með parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu,  gluggi, snyrtileg innrétting, tengi fyrir þvottavél og flísalagðir veggir og gólf. 
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 5,2 fm. 

Í sameign er hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús. 
Sameign er öll mjög snyrtileg. 

Nýir gluggar á suðurhlið íbúðarinnar og ný svalahurð árið 2025
Húsið var málað að utan árið 2026. 
Bílaplan var malbikað og málað árið 2026. 

Mjög góð þriggja herbergja íbúð í þessum vinsæla og fjölskylduvæna hluta Vesturbæjarins.
Leikskóli, grunnskóli og íþróttaaðstaða í næsta nágrenni.

Eign sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík