Opið hús: Dugguvogur 11, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 03 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 30. nóvember 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 76,9 m2 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Dugguvog 11 í Reykjavík. Eignin er skráð 76,9 m2 en þar af íbúð 62,9 m2 og geymsla 14,0 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. Yfirbyggðar svalir og sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON í bílakjallarann.
Um er að ræða vandað hús byggt af ÞG Verk árið 2023 í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa er með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir með viðarfjölum á svalagólfi.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með frá Nobila (GKS). Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, helluborð, bakaraofn frá AEG og vifta.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn og vegghengt salerni. Gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og gluggum til austurs.
Sérgeymsla er í sameign. Er skráð 14,0 m2.
Sérbílastæði í lokuðum bílakjallara. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON.
Sameign: Eigninni fylgir hlutdeild að sameignilegri hjóla- og vagnageymslu. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Einungis tvær íbúðir á hverjum opnum svalagangi. Myndavéladyrasími í íbúðum.
Verð kr. 71.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.