Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Vista
raðhús

Lynghólar 18

210 Garðabær

187.000.000 kr.

909.976 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2312638

Fasteignamat

164.700.000 kr.

Brunabótamat

113.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2014
svg
205,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Garður
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Þaksvalir
Opið hús: 10. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Lynghólar 18, 210 Garðabæ. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 10. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt og vandað endaraðhús á tveimur hæðum með stórum þaksvölum með heitum potti, innbyggðum bílskúr og vönduðum, samræmdum innréttingum.  Um er að ræða 205,5 fm fjölskyldueign með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, góðum fataskápum og einstaklega góðu útisvæði. Innanhúshönnun var unnin í samráði við arkitektinn Helgu Vilmundardóttur. Falleg aðkoma er að húsinu með steyptu og upphituðu bílaplani og skjólveggjum. Að aftan er stór og skjólgóður pallur og gott leiksvæði sem hentar einstaklega vel fyrir barnafjölskyldur. Möguleiki er að stækka húsið að fengnum tilskildum leyfum. Staðsetningin er frábær þar sem stutt er í skóla, íþróttaaðstöðu, sund, alla þjónustu og fallegar gönguleiðir í hrauninu. Frábær fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Garðabæ. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 8202222 eða hafdis@fstorg.is
 
Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum flísum á gólfi og góðum sérsmíðuðum fataskáp með rennihurðum sem ná upp í loft. Stór rennihurð aðskilur svo forstofu og íbúðarrými.
Hol: frá forstofu er komið inn á hol sem leiðir inn í önnur íbúðarrými. Sérsmíðaðar hillur eru á holinu  og fallegur steyptur stigi með glerhandriði liggur upp á efri hæð hússins. Stór gluggi er á uppgöngunni sem hleypir góðri birtu inn í eignina.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa eru samliggjandi eldhúsi. Vandað fallegt harðparket er á gólfi og stórir gluggar hleypa góðri birtu inn. Úr stofu er útgengt á stóran og skjólgóðan pall og gott útisvæði að aftan sem nýtist einstaklega vel sem leiksvæði fyrir börn. Í stofunni eru lagnir fyrir The Frame sjónvarp innbyggðar í vegg.
Eldhús: eldhúsið er glæsilegt með fallegri sérsmíðaðri innréttingu, stórri eyju og granít á borðum. Í eldhúsinu eru vönduð Miele heimilistæki, tvöfaldur ísskápur og ofn í vinnuhæð. Falleg lýsing og loft tekið niður að hluta. Innfelld LED-lýsing er í stofu og eldhúsi. Útgengt er út á timburverönd með steyptum skjólveggjum frá eldhúsinu. Þar er einstaklega skjólsælt.
Gestasalerni: á neðri hæðinni er fallegt gestasalerni með flísum á veggjum að hluta, innbyggðum blöndunartækjum og upphengdu salerni.
Þvottahús: þvottahúsið er mjög vel útbúið með fallegri innréttingu, vélarnar eru í vinnuhæð, góður gluggi er á þvottahúsinu og flísar á gólfi.
Geymsla: inn af þvottahúsi er góð geymsla með flísum á gólfi.
Bílskúr: innangengt er í bílskúrinn frá geymslu, epoxy er á gólfi,  gluggi og göngudyr. Rafmagnshurðaopnari, vinnuaðstaða og hillur.
Efri hæð: á efri hæðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, glæsilegt baðherbergi og stórar þaksvalir með heitum potti og frábæru útsýni.
Svefnherbergi: svefnherbergin þrjú eru öll rúmgóð með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum í öllum herbergjum.
Baðherbergi: glæsilegt, rúmgott baðherbergi með stórri sturtu með glerskilrúmi, innbyggðum Vola blöndunartækjum, innfelldri LED-lýsingu  og rúmgóðri hvítri innréttingu með granít á borði. Gluggi og handklæðaofn.
Þaksvalir: frá efri hæðinni er gengið út á stórar þaksvalir með heitum potti og frábæru útsýni.
Möguleiki er á stækkun hússins að fengnum tilskildum leyfum og dæmi eru um sambærilega stækkun í húsalengjunni.
 
Niðurlag: Þetta er virkilega glæsilegt  og vandað fjölskylduhús á frábærum stað í Garðabænum þar sem örstutt er í alla þjónustu, skóla og fallegar gönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

img
Hafdís Rafnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. ágú. 2017
65.550.000 kr.
89.900.000 kr.
205.5 m²
437.470 kr.
20. feb. 2014
9.920.000 kr.
42.000.000 kr.
205.5 m²
204.380 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ