Lýsing
Miklaborg kynnir fallega og bjarta, 56,8 fm íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli í Selásnum ásamt tveimur stæðum í bílageymslu 21,8 fm hvort. Eignin er vel skipulögð og mikið endurnýjuð og skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu, svefnherbergi og svalir sem snúa í vestur. *Frábær fyrstu kaup*
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
Nánari lýsing
Forstofa : Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús inn í stofu með nýlegri hnotu eldhúsinnréttingu frá Parka. Steinn á borðum og gott skápapláss í eldhúsinu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Tengi fyrir þvottavél er í eldhúsinu og er til frontur fyrir þvottavélina í sama stíl og innréttingin.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa. Harðparket á gólfi og út gengt út á góðar svalir sem snúa í vestur.
Hjónaherbergi: Er sömuleiðis rúmgott með góðum fataskápum frá Parka. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er nýlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtu. Upp hengt klósett, hvít baðherbergisinnrétting ásamt speglaskápum.
Tvö stæði í lokaðri bílageymslu: Annað stæðið er þinglýst með eigninni en hinu stæðinu fylgir kaupsamningur, en honum hefur ekki verið þinglýst. Eignaskiptasamningi sem fylgir þarf að þinglýsa.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir eigninni, 4fm.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara ásamt vagna-og hjólageymslu.
Vinsælt og barnvænt hverfi, stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is