Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðjón Hjörleifsson
Vista
einbýlishús

Strandvegur 39

900 Vestmannaeyjar

64.900.000 kr.

641.304 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2184754

Fasteignamat

29.540.000 kr.

Brunabótamat

49.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1908
svg
101,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nýuppgerð fasteign með tveimur leigueiningum á besta stað í bænum, samtals 120.7 m2 (gólfflötur)

Heimaey fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Strandveg 39, VM (Strandberg). FNR: 218-4754. Eignin er skráð 101,2 m2 á 2 hæðum, en einnig er óskráð 19.5 m2 svefnloft og er því ekki inni í heildarfermetrafjölda eignar (samtals 120.7 m2) . Eignin er byggð úr steini/timbri árið 1908 og gæti fallið undir húsfriðun

Eignin er á besta stað í bænum og hefur farið í gegnum miklar endurbætur undanfarið ár (sjá lista neðar í lýsingunni). Athugið að núverandi myndir eru frá því að eign var í skammtímaleigu (vantar mynd af neðstu hæð) en nýjar eftir breytingar eru væntanlegar.

Eignin skiptist í tvö rými með sitthvorum innganginum:

​Jarðhæð 50,6 m2: Endurnýjað og innréttað rými sem er leigurými í dag, en þar er salur með nýju salerni og vaski ásamt nýrri hitaveitugrind fyrir húsið. Nýbúið er að flota gólfið ásamt því að skipta um veggklæðningu á austur- og suðurhlið.

​Efri hæð: Nýuppgerð íbúð með sérinngangi sem skiptist í 50,6m2 hæð og 19.5m2 svefnloft. Gengið er inn í forstofu með nýlegri innréttingu ásamt þvottavél og þurrkara. Þar innan af er gengið inn í baðherbergi sem er uppgert að hluta til með nýjum blöndunartækjum, nýju salerni og nýjum sturtuklefa. Þaðan er gengið inn í opið rými sem inniheldur stofu, eldhús og eitt svefnherbergi. Eldhúsið er nýlegt með innréttingu frá Ikea og fylgja tæki með í kaupunum. Nýtt parket er á allri hæðinni. Einnig er búið að skipta um nýtt rafmagn að hluta til í eigninni.

Efsta hæð hússins er rúmgott 19.5 m2 svefnloft með góðri lofthæð. Hægt að skipta upp í tvö rými eða fleiri. Nýtt parket, nýir veggir, ný klæðning, nýtt þak, nýir burðarbitar í þaki.

Frábær fjárfesting sem vilja eiga íbúð í Vestmannaeyjum og fá innkomu af neðri hæðinni eða fyrir þá sem vilja leigja út 2 leigueiningar. Jarðhæðin er með virkum leigusamningi við fyrirtæki í atvinnurekstri en íbúð efri hæðar var í langtímaleigu

Eign á frábærum stað í hjarta miðbæjarins. Stutt í alla þjónustu, 80 metrar í Bónus, 120 metrar í Krónuna og aðra mikilvæga þjónustu. Það er ekki oft sem koma svona eignir í hjarta bæjarins á sölu.
 
Vinna sem hefur farið fram í eigninni undanfarin ár en áætlaður kostnaður við betrumbætur og viðgerðir 2026 er rétt undir 15.000.000.

2026 - Framkvæmdir

Neðsta hæð (Verklok Ágúst 2026)
  • Járnbitar settir upp til að styrkja burð á gólfi
  • Járnbiti klæddur með plötum
  • Baðherbergisveggir styrktir með frekari burði fyrir gólf
  • Nýjar loftaplötur uppsettar
Miðhæð (Verklok Sept 2026)
  • Nýtt parket og listar
  • Burður fyrir gólf á risi betrumbætt
  • Veggir á herbergi styrktir með frekari burð fyrir gólf
  • Ný klæðning á ytri veggi í herbergi
  • Gluggakistur málaðar að innan
  • Nýjar loftaplötur uppsettar
  • Ný einangrun í gólfi
  • Flotað og parketlagt
  • Veggir málaðir
  • Nýjar innihurðar
Ris (verklok sept 2026)
  • Nýtt parket og listar
  • Burðarbitum fyrir gólf fjölgað
  • Allt nýtt á veggjum
  • Veggir málaðir
Þak (verklok Júlí 2026)
  • Alveg nýtt þak sett upp
  • Öllum þaksperrum og lektum skipt út fyrir nýjar
  • Ný einangrun í þaki
Veggur (verklok Júní 2026)
  • Veggur sem snýr að Bónus var múraður upp á nýtt
2024 - Framkvæmdir
  • Skipt var um 2 glugga árið 2024
  • Skipt var um pappa og járn á neðra þaki við inngang til vesturs árið 2024
  • Tröppur utanhúss lagfærðar 2024 og rennur hreinsaðar á sama tíma.
  • Nýr sturtuklefi settur upp
  • Skipt um nýtt rafmagn að hluta til í eigninni
2018 > 2023 - Framkvæmdir 
  • Nýtt eldhús sett upp
  • Ný innrétting fyrir þvottavél og þurrkara sett upp
  • Ný hitaveitugrind sett upp
  • Gólf flotað
  • Skipt um veggklæðningu á austur- og suðurhlið.
  • Ný blönduartæki og salerni sett upp
  • Nýjar fráveitulagnir inn í hús
  • Skipt um glugga sem snýr í vestur

    Mikið endurnýjuð eign í hjarta miðbæjarins. Eign sem vert er að skoða betur.

    Nánari upplýsingar gefur Guðjón Hjörleifsson löggiltur fasteignasali s: 895 2548 eða email: gh@heimaey.net

Heimaey fasteignasala

Heimaey fasteignasala

Bárustígur 1, 900 Vestmannaeyjar
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. mar. 2022
17.400.000 kr.
30.000.000 kr.
101.2 m²
296.443 kr.
28. sep. 2018
13.650.000 kr.
19.000.000 kr.
101.2 m²
187.747 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimaey fasteignasala

Heimaey fasteignasala

Bárustígur 1, 900 Vestmannaeyjar
phone