Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Eva Dögg Bergþórsdóttir
Vista
hæð

Skagfirðingabraut 35 - miðhæð

550 Sauðárkrókur

59.900.000 kr.

392.016 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2132138

Fasteignamat

44.850.000 kr.

Brunabótamat

70.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1951
svg
152,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á miðhæð ásamt stúdíóíbúð í bílskúr í fasteigninni við Skagfirðingabraut 35, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Heildarstærð eignarinnar skv. HMS, ásamt sameign, er 152,8 fm. Íbúðin er skráð 114,7 fm. og bílskúr 38,1 fm.
Húsið var steypt árið 1951 og eru alls fjórar hæðir að meðtöldum kjallara og rishæð. Í húsinu eru þrjár íbúðir. 
Leigulóð hússins alls er 365 fm. 
Björt og vel skipulögð íbúð á frábærum stað. 
Góð staðsetning. Stutt er í skóla, íþróttasvæði og íþróttahús, sundlaug, verslun o.fl.


Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, fataherbergi, hol og forstofu.
Sérinngangur um steyptar tröppur í flísalagða forstofu. Forstofa er panelklædd.
Frá forstofu er gengið inn í parketlagt hol og gang.
Stofa er parketlögð og snýr í suðvestur.
Við stofu er parketlagt herbergi með útgangi til vestursvala.
Í eldhúsi eru parketflísar á gólfi og hvítmáluð innrétting. Helluborð, ofn og borðplata var endurnýjuð í lok árs 2020.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfum, veggir klæddir með ljósum plötum, sturtuklefi og hvít innrétting.
Við gang er fataherbergi.
Við enda gangs eru tvö parketlögð herbergi.
Innangengt er í sameign í kjallara frá forstofu. Jafnframt er innangengt úr sameign í bílskúr. Í sameign eru sérgeymslur fyrir hinar íbúðir hússins og sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Ljósleiðari er í íbúð.

Stúdíóíbúð í bílskúr skiptist í herbergi, baðherbergi og alrými þar sem er eldhús og forstofa. Íbúð í bílskúr er ósamþykkt.
Bílskúr var innréttaður sem stúdíóíbúð sumarið 2020, þ.á.m. voru vatnslagnir og raflagnir endurnýjaðar.
Hvíttað eikarparket er á gólfum.
Hvítar innréttingar í eldhúsi og stofu. Borðplötur úr harðplasti frá Trésmiðjunni Borg.
Hvít rennihurð skilur að svefnherbergi og baðherbergi frá alrými. Nýr gluggi er í herbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á hluta veggja. Sturta, hvít tæki, handklæðaofn og innrétting við vask. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Engin túða er á baðherbergi og loftun um glugga.
Önnur útidyr er til suðurs inn í garð frá eldhúsinu. Einnig er eldvarnhurð í eldhúsi inn í sameign.

Sólpallur sunnan við húsið er sameiginlegur með öllu húsinu.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. apr. 2021
23.650.000 kr.
36.000.000 kr.
152.8 m²
235.602 kr.
1. ágú. 2018
19.450.000 kr.
28.600.000 kr.
152.8 m²
187.173 kr.
9. jún. 2015
15.550.000 kr.
21.000.000 kr.
152.8 m²
137.435 kr.
23. júl. 2007
11.235.000 kr.
14.500.000 kr.
152.8 m²
94.895 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone