Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Arnarsíða 12b

603 Akureyri

79.900.000 kr.

696.600 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2144805

Fasteignamat

70.600.000 kr.

Brunabótamat

66.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
114,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 5. nóvember 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Arnarsíða 12b - Vel skipulögð 4ra herbergja raðhúsaíbúð á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 114,7 m².
Örstutt í leik- og grunnskóla  

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 


Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum innbyggðum skáp. Fyrir framan forstofuhurðina er bæði steypt og hellulögð stétt. 
Eldhús, snyrtileg hvít innrétting með dökkri borðplötu og dökkum flísum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Góður borðkrókur.  
Stofan er rúmgóð og með vínyl parketi á gólfum. Úr stofu er gengið út til vesturs á timbur verönd. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með vínyl parketi á gólfum og tvö með fataskápum. 
Baðherbergi er með dökku flísum á gólfum og ljósum á hluta veggja. Hvít innrétting, wc og baðkar með sturtutækjum. 
Þvottahús er við hliðina á forstofu og þar er lakkað gólf, bekkur með vask, hvít innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og opnanlegur gluggi. 
Geymsla er inn af þvottahúsi með lökkuðu gólfi og hillum á veggjum.  

Annað
- Tvö geymsluloft eru yfir íbúðinni og er fellistigi upp á annað þeirra.  
- Nýtt vínyl parket var lagt á helstu rými og flísar á forstofu árið 2021. 
- Nýjar hvítar innihurðar árið 2021.
- Innrétting á baðherbergi var endurnýjuð árið 2021.
- Búið er að endurnýja hluta af raflögnum og alla tengla og rofa.
- Húsið var málað að utan árið 2026, bara steyptir fletir. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. jún. 2021
39.150.000 kr.
38.000.000 kr.
114.7 m²
331.299 kr.
19. okt. 2010
19.850.000 kr.
21.800.000 kr.
114.7 m²
190.061 kr.
28. sep. 2007
18.280.000 kr.
19.200.000 kr.
114.7 m²
167.393 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone