Lýsing
Miklaborg kynnir: Tveggja herbergja íbúð á annari hæð merkt íb. 202 í nýlegu góðu lyftuhúsi við Hverfisgötu. Birt stærð íbúðar er 77,2 fm og geymsla í kjallara 8,4 fm. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara merkt B19 með rafhleðsluaðstöðu.. Gólfhiti, innfelld lýsing, vandaðar innréttingar með Silestone kvartstein á borðum, vandað gólfefni og vönduð blöndunartæki. Gólfsíðir gluggar.
Nánari upplýsingar: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg.fast. vidar
Hverfisgata 92 er glæsileg bygging í hjarta miðborgarinnar með 24 fallegum íbúðum þar sem lagt hefur verið mikið upp úr hönnun og frágangi.
Íbúð 202: í húsi A er 85,6 m² tveggja herbergja íbúð, á jarðhæð frá inngarði en annari hæð frá Hverfisgötu. Íbúðin er með 6,3 m² verönd. Komið er inn í anddyri með skápum. Svefnherbergið er glæsilegt með stórum gólfssíðum glugga og skáp. Flestir gluggar gólfsíðir. Baðherbergi er sérlega rúmgott með sturtu og þvottaaðstöðu.
Eldhús er opið inn í stofu. Þar er spanhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð. ísskápur og frystir eru innbyggðir í eldhúsinnréttinguna ásamt uppþvottavél. Öll tæki frá AEG.
Í stofu/borðstofu eru gólfsíðir gluggar en þaðan er útgengt á verönd. Gólfefni er harðparket, en fflísar á baðherbergi.
Eigninni fylgir 8,4 m² geymsla í kjallara sem er hluti af birtu flatarmáli merkt nr 0001 og stæði B-19 í bílgeymslu.
Húsið: Hverfisgata 92 er 24 íbúða bygging í þremur stigahúsum og skiptist í A, B og C hús. Á milli húsanna er skjólgóður inngarður sem er opinn á móti og suðri og vestri. Bílastæði í sameiginlegri bílgeymslu fylgja öllum íbúðum. Batteríið Arkitektar sáu um hönnun hússins. Gamli stíllinn sem einkennir miðbæinn hefur fengið að halda sér í bland við nútímalegar byggingar sem falla vel að heildarmynd miðborgarinnar.
Hljóðvistin uppfyllir ítrustu kröfur byggingareglugerðar. Loftræstingin tryggir betri hljóðvist og loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki.
Nánari upplýsingar: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg.fast. vidar@miklaborg.is, s.6941401