Lýsing
Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Flott 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á tveimur efstu hæðum( 5.og 6.) í nýlegu fjölbýli við Hverfisgötu í 101 Reykjavik. Á neðri hæð eru skjólgóðar suðursvalir og á efri hæð útsýnissvalir í norður. Stæði í lokaðri bílgeymslu fylgir. Húsið stendur á eignarlóð.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg, fast: vidar@miklaborg.is, s.694-1401.
Nánari lýsing Neðri hæð: Flísalögð forstofa með fataskáp.
Svefnherbergi með harðparketi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni og "walk in" sturtu. Tengt fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með AEG spanhelluborði og bakaraofni. Falleg innrétting með innbyggðum ísskáp og frysti frá AEG ásamt uppþvottavél. Mjög gott skápapláss er í eldhúsi.
Á neðri hæð er lítil stofa og gengt frá henni út á stórar suðursvalir.
Efri hæð: Rými sem nýtist sem stofa eða sjónvarps/vinnurými.
Svefnherbergi sem snýr í norður og gengt út á litlar norðursvalir frá því.
Á efri hæð við svefnherbergið er "en suite" flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og "walk in" sturtu.
Á jarhæð fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu. þar er einnig hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús.
Vönduð íbúð með innréttingum frá ítalska framleiðandanum Cubo design. Gólfhiti er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar veita góða birtu á báðar hæðir.