Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hermann Aðalgeirsson
Vista
svg

537

svg

446  Skoðendur

svg

Skráð  12. jún. 2025

fjölbýlishús

Garðarsbraut 67

640 Húsavík

36.900.000 kr.

378.850 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2152661

Fasteignamat

31.450.000 kr.

Brunabótamat

47.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
97,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 67, 640 Húsavík, íbúð 203.

Eignin Garðarsbraut 67 íbúð 203 er 90,9 m2, töluvert endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í góðu fjöleignarhúsi sem hefur hlotið gott viðhald í gegnum árin. Við hliðina á húsinu er góður leikvöllur auk þess sem matvöruverslun er hinum megin við götuna.
Fjöleignarhúsið er byggt árið 1975 úr steypu og samanstendur af 4 hæðum og þremur stigagöngum. Húsið lítur vel út að utan og var farið í miklar framkvæmdir fyrir nokkrum árum þar sem m.a. var farið í múrviðgerðir og málun, klætt utan á svalir, glerskipti og sett múrkerfi m/einangrun utanfrá á stafna hússins. Árið 2006 var skipt um þakjárn, pappa, klæðningu og þakrennur. 


Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Stofa og eldhús eru V-megin og herbegin eru austan megin. 
Nánari lýsing; Gengið er inn í forstofu sem er opin inn í hol sem tengir saman önnur rými. Innbyggður fataskápur er í forstofunni. Stofan er rúmgóð miðað við stærð íbúðar og er með stórum gluggum til vesturs með góðu útsýni. Útgengi er út á 5,9 m2 svalir úr stofunni. Þrjú herbergi eru í íbúðinni og er hjónaherbergið stærst. Fataskápur er í tveimur herbergjanna.  Eldhús er með hvítri innréttingu með efri og neðri skápum, flísum þar á milli og ljosgrárri borðplötu. Borðkrókur er við enda innréttingar við hol íbúðar. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Skápa- og vaskainnrétting er úr við. Sturta með glerskilrúmi er innst á herberginu og þar við er handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu.
Á fyrstu hæð er hjóla- og vagnageymsla sem tilheyra sameign auk þess sem þar er sameiginlegt þurrkherbergi.   

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða í netfanginu hermann@logeign.is eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Lögeign

Garðarsbraut 26, 640 Húsavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. ágú. 2022
22.600.000 kr.
32.000.000 kr.
90.9 m²
352.035 kr.
7. sep. 2021
21.200.000 kr.
23.700.000 kr.
90.9 m²
260.726 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Lögeign

Garðarsbraut 26, 640 Húsavík
phone