Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
hæð

Laugateigur 21

105 Reykjavík

67.900.000 kr.

875.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019183

Fasteignamat

63.150.000 kr.

Brunabótamat

42.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
77,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 10. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Laugateigur 21, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 10. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Einstaklega falleg og vel skipulögð 77.6 fermetra þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í húsi sem hefur fengið gott viðhald á síðustu árum.  Nýlegt eldhús og bað í íbúðinni, ásamt nýjum hurðum. Húsið var múrviðgert og endursteinað að utan sumarið 2019 og járn og pappi á þaki endurnýjað. Dren og frárennsli hefur verið endurnýjað. Góð staðsetning, stutt í margskonar þjónustu, skóla, sundlaugar, íþróttaaðstöðu og útivistarsvæði í Laugardalnum. 
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs.í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is.

Gengið er inn í íbúðina bakatil á húsinu, þar sem komið er fyrst inn í sameign hússins og þaðan að inngangi í íbúðina. Aðrir íbúar hússins nota ekki þennan inngang. Íbúðin skiptist í forstofu eða hol sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Til hægri úr holi er baðherbergi og eldhús, herbergi og stofa til vinstri úr holi, herbergi við enda holsins. Bæði baðherbergi og eldhús voru endurnýjuð á árinu 2021. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og sturtuklefa, innréttingu undir vaski og á vegg. Eldhús er með stórri glæsilegri tekklitaðri innréttingu með miklu skápaplássi og stállitum tækjum, flísum á milli skápa og á gólfi. Herbergin eru rúmgóð, um 10 fermetrar og 14 fermetrar, bæði björt og vistleg. Stofan er björt og rúmgóð, með gluggum í tvær áttir og nægu plássi fyrir borðstofuborð og setustofu. Harðparket er á gólfum í allri íbúðinni að frátöldu baði og eldhúsi, þar sem eru flísar á gólfum. Eigendur hafa endurnýjað hurðir í íbúðinni en tekið niður hurðakarma að stofu og eldhúsi, sem opnar rýmið og eykur birtuflæði. Sérgeymsla, 2,1 fermetrar, fylgir íbúðinni ásamt aðgengi að sameiginlegu þvottahús.

Vel skipulögð og vel frágengin þriggja herbergja íbúð á vinsælum stað í nágrenni við leik- og grunnskóla, fjölbreytta þjónustu og falleg útivistarsvæði í Laugardalnum.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. nóv. 2022
40.900.000 kr.
48.400.000 kr.
77.6 m²
623.711 kr.
16. nóv. 2021
38.600.000 kr.
42.000.000 kr.
77.6 m²
541.237 kr.
12. jan. 2011
14.900.000 kr.
17.384.000 kr.
77.6 m²
224.021 kr.
5. maí. 2009
17.930.000 kr.
16.300.000 kr.
77.6 m²
210.052 kr.
11. sep. 2006
14.590.000 kr.
17.000.000 kr.
77.6 m²
219.072 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík