Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hallgrímur Óskarsson
Vista
sumarhús

Mýrarkot Lóð 1

805 Selfoss

69.800.000 kr.

512.482 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2267161

Fasteignamat

65.350.000 kr.

Brunabótamat

9.760.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
136,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Mýrarkot lóð 1, Grímsnes og Grafningshreppi.
Um er að ræða 117,1 fm. sumarhús á steyptum sökkli og gólfplötu, ásamt 19,1 fm. geymsluskúr/gestahús. Samtals 136,2 fm.  Húsin standa á 8.800 fm. eignarlóð. Sumarhúsið er  klætt að utan með lituðu bárujárni og timbri. Sumarhúsið var byggt 2016 en geymsluskúrinn/gestahús árið 2003. Gólfhitalagnir eru í húsinu. Geymsluskúr/gestahús sem er einangrað og plastað að innan. 

Eignin er í skammtímaleigu hjá bæði booking og airbnb og er með öll tilskilin leyfi þar að lútandi. Hún hefur því  tekjumöguleika.  Heitt vatn er á svæðinu og er það um 40.C°.

Eignin skiptist í Eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og  22.2 m² svefnloft.  Samkvæmt teikningu eru þrjú herbergi í sumarhúsinu en þriðja rýmið er nýtt sem sjónvarpshol en auðvelt er að breyta því aftur í herbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa : Flísar á gólfi. Fataskápur
Stofa: Harðparket á gólfi og upptekið loft.  Útgengt á verönd.  
Eldhús: Upptekið loft. Svört innrétting með eikarborðplötu, upphengdum skápumog eyju með gashelluborði.
Baðherbergi:  Flísar á gólfi. Svört innrétting. Sturta, upphengt wc og tengi fyrir þvottavél.  Útgengt er á verönd af baðinu.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi. Fataskápur
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi. Fataskápur

Timburstigi  liggur upp á  svefnloft sem er skráð 22.2 m². Rýmið er opið, með tveimur þakgluggum auk glugga á stöfnum. Geymslur eru undir súð. Harðaprket er á gólfi.

Geymsla/gestahús: Stendur við hlið sumarhússins. Geymslan/gestahúsið stendur á á timburstaurum. Að utan er það klætt með liggjandi timburklæðningu og er bárujárn á þaki. Geymslan er óinnréttuð. Kominn er tími á að mála utanhússklæðningu.

Umhverfis húsið er timburverönd. Á veröndinni bakatil er rafmagnspottur.  Innkeyrsla og plan við húsið er malarborið

Mögulegt er að  kaupa á rúmlega 11 hektara lands sem er skráð sem ræktunarland.  Landið er afgirt, með brynningu fyrir hross og hestagerði. Verð hússins í auglýsingu er án þess lands.

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Lögmenn Suðurlandi

Lögmenn Suðurlandi

Austurvegi 3, 800 Selfoss
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. sep. 2022
33.100.000 kr.
53.000.000 kr.
136.2 m²
389.134 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögmenn Suðurlandi

Lögmenn Suðurlandi

Austurvegi 3, 800 Selfoss
phone