Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1968
239,6 m²
8 herb.
2 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 16. nóvember 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Geitland 3, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgott og vel skipulagt fjölskylduraðhús á pöllum við Geitland 3 í Fossvogi. Samkvæmt skráningu HMS er eignin 239,6 fm, þar af íbúðarrými 212,0 fm og bílskúr 27,6 fm.Í húsinu eru bjart og opið alrými með nýlegu eldhúsi frá HTH, sex svefnherbergi, sjónvarpsherbergi og rúmgott þvottahús. Timburverönd með heitum potti er til suðurs og hleðslustöð fyrir rafbíl er við bílskúr. Húsið stendur neðan götu í grónu og rólegu hverfi og bílastæði eru framan við hús. Stutt er í leikskóla, Fossvogsskóla, Réttarholtsskóla, íþróttasvæði Víkings og gönguleiðir í Fossvogsdal.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing:
Miðpallur
Komið er inn í flísalagða forstofu. Á pallinum er flísalögð gestasnyrting, forstofuherbergi með harðparketi og rúmgott herbergi með harðparketi, sem sýnt er sem eldhús á samþykktum teikningum. Inn af því er geymsla með innréttingu og bakútgangi.
Efsti pallur
Stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs. Eldhúsið er frá 2025 með HTH-innréttingu og AEG-tækjum, m.a. 80 cm spanhelluborði með innbyggðri viftu. Úr stofu er gengið út á suðursvalir með góðu útsýni.
Neðri pallur
Á neðri palli eru hol, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er með harðparketi og þaðan er útgengt á timburverönd til suðurs með heitum potti og litlum garðskúr. Barnaherbergin þrjú eru minni, einnig með harðparketi. Baðherbergið er með baðkari og sturtuaðstöðu og dúk á gólfi.
Neðsti pallur
Á neðsta palli, þar sem lofthæð er minni, eru sjónvarpsherbergi, geymsla með skápum og rúmgott þvottahús.
Bílskúr
Bílskúrinn er í bílskúrslengju, með hita, vatni og rafmagni og bílskúrshurð með rafmagnsopnun. Hleðslustöð fyrir rafbíl er við bílskúr.
Helstu endurbætur
2009: Þakjárn endurnýjað að sögn fyrri eigenda
2022: Skipt um þakflasningu á suðurhlið
2022: Ýmsar endurbætur, t.a.m. var sjónvarpsherbergi útbúið á neðsta palli, gólfefni lagt á flest rými, rafmagn endurnýjað að hluta og herbergi á efsta palli opnað inn í stofu.
2023: Timburverönd með heitum potti sett upp.
2023: Innrétting og ræstivaskur sett í þvottahúsi
2024: Umfangsmiklar endurbætur á bílskúrslengjunni
2025: Eldhús fært af miðpalli á efsta pall og herbergi útbúið á miðpalli þar sem áður var eldhús
2025: Nýjar innréttingar settar í geymslu á miðpalli og geymslu á neðsta palli
2026: Forstofa flísalögð
Framkvæmdir
Eigendur í raðhúsalengjunni hafa sammælst um að mála þak, endurnýja þakflasningu á vesturhlið og gera við sprungu á vesturgafli sumarið 2027.
Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. feb. 2022
102.800.000 kr.
116.000.000 kr.
239.6 m²
484.140 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026